Langholtskirkja

 

Frábærir orgeltónleikar

Fyrstu tónleikar Listafélags Langholtskirkju sunnudaginn 4. nóvember tókust stórkostlega vel. Eyþór Ingi Jónsson organisti Akureyrarkirkju sýndi snilli sína á orgel Langholtskirkju ásamt því að sýndar voru myndir á tjöldum af spilamennsku hans sem og útskýringar á orgelverkunum.
Var það mál manna að þessar myndaskýningar hefðu tekist mjög vel og opnað nýja sýn á orgelverkin og uppbyggingu þeirra ásamt því að mjög gaman var að sjá á tjaldi hendur og fætur organistans. Á undan tónleikunum var mótttaka. Myndir má sjá hér á myndasíðu Langholtskirkju. Næstu tónleikar Listafélags Langholtskirkju verða sunnudaginn 18. nóvember kl. 20 en það eru minningartónleikar um séra Sigurð Hauk Guðjónsson. Kór Langholtskirkju flytur ásamt einsöngvurum og hljómsveit Magnificat og Actus tragicus eftir J.S. Bach. Listáhugafólk og velunnarar Langholtskirkju eru hvattir til að ganga í Listafélagið og styðja þar með tónleikastarf Langholtskirkju.

Jón Helgi Þórarinsson, 4/11 2007 kl. 22.15

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS