Guðsþjónusta og barnastarf á kristniboðsdegi
Sunnudaginn 11. nóvember er kristniboðsdagurinn í íslensku þjóðkirkjunni. Um það efni verður fjallað í guðsþjónustnni í Langholtskirkju kl. 11 þar sem Graduale futuri syngur og fermingarbörn annast lestur. Tekið verður við framlögum til kristniboðsstarfs.
Sungnir verða m.a. söngvar frá Afríku og Suður Ameríku. Sýndar verða myndir frá kristniboði og verða þær hluti af predikun. Barnastarfið hefst í kirkjunni og syngja börnin áður en þau fara í safnaðarheimilið.
Jón Helgi Þórarinsson, 7/11 2007 kl. 6.18