Kvenfélagið gaf skjávarpa
Kvenfélag Langholtssóknar afhenti Langholtskirkju skjávarpa að gjöf á fundi 6. nóvember. Margrét Leósdóttir formaður félagsins afhenti gjöfina en sóknarprestur þakkað félaginu fyrir þessa gjöf og dyggan stuðning félagsins við kirkjustarfið fyrr og síðar. Stór hluti þess sem kom inn á basarnum 3. nóv. fer í að standa straum að þessari gjöf,
All lengi hefur verið rætt um nauðsyn þess að Langholtskirkja eignaðist skjávarpa, enda mjög margir sem nota slíkt tæki við fyrirlestra og fræðslu ýmis konar auk þess sem myndir eru gjarnan sýndar nú orðið með þessari tækni. Til að hægt væri að nota skjávarpann einnig í kirkjunni þarf hann að vera öflugur og kostar því töluvert. Hagstætt tilboð fékkst frá EJS og voru kvenfélagskonur spurðar hvort þær gætu hugsað sér að gefa kirkjunni þetta þarfa tæki sem þær samþykktu. Verður tækið jafnt notað við fræðslu ýmis konar sem og í kirkjunni sjálfri. Á fundinum sýndi Helga Guðmundsdóttir myndir af ferð sinni til kvenfélaga í Bandaríkunum og notaði þá skjávarpann.
Jón Helgi Þórarinsson, 7/11 2007 kl. 6.16