Minningartónleikar um Sigurð Hauk
Sunnudagskvöldið 18. nóvember kl. 20 verða haldnir í Langholtskirkju minningartónleikar um séra Sigurð Hauk Guðjónsson, fyrrum sóknarprest í Langholtsprestakalli. Kór Langholtskirkju flytur verkin Magnificat og Actus tragicus eftir J.S. Bach ásamt einsöngvurum og hljómsveit. Stjórnandi er Jón Stefánsson. Einsöngvarar eru: Þóra Einarsdóttir, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Björn Jónsson og Alex Ashworth. Tónleikarnir eru um klukkustundar langir. Miðasala er í Langholtskirkju - sæti eru númeruð.
Magnificat frá árinu 1728-31 er eitt af meistaraverkum Bachs. Það er samið fyrir hljómsveit, einsöngvara og fimm radda kór og textinn er Lofsöngur Maríu úr Lúkasarguðspjalli. Form og stíll hjálpast að við að gera þetta verk að einu allra aðgengilegasta verki Bachs. Magnificat er einkar glæsilegt og hefur á stundum verið nefnt Forleikurinn að H-moll messunni sem löngum hefur verið talin í hópi bestu verka J.S. Bach.
Ekki er vitað um nákvæma dagsetningu frumflutnings Actus Tragicus en margt bendir til þess að það hafi verið á haustdögum 1707 og fagnar því verkið 300 ára afmæli sínu nú í haust. Margar getgátur eru uppi um tilurð tónverksins þó eru flestir á því að það sé samið í minningu vinar. Tilfinningaleg dýpt þess ljær því nær ójarðneskan blæ og hefur verkið veitt mörgum fró á erfiðum tímum.
Kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar hefur lengi verið í fremstu röð íslenskra kóra. Á þessum tónleikum bætast í kórinn fjölmargir eldri félagar sem vildu heiðra minningu látins samstarfsmanns og fyrsta heiðursfélaga kórsins. Kórfélagar eru því um eitthundrað á þessum tónleikum.
Frá árinu 1982 hefur kórinn flutt stórvirki baroksins reglulega og þannig mótað og þroskað túlkun og skilning á tónverkum barok-tímans á Íslandi.
Tónleikarnir verða um klukkustundar langir og eru ákjósanlegir fyrir alla unnendur góðrar tónlistar, jafnt byrjendur sem lengra komna í heimi sígildrar tónlistar.
Jón Helgi Þórarinsson, 13/11 2007 kl. 21.19