Helgun kapellu og hátíðamessa 25 nóv
Kapella í anddyri Langholtskirkju verður helguð í lok hátíðamessu 25. nóvember kl. 11. Sr Kristján Valur Ingólfsson predikar en sóknarprestur vígir kapelluna. Herder Anderson hefur gefið alla muni í keplluna. Kammerkór Langholtskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar. Kapellan mun bera nafn Guðbrands biskups Þorlákssonar eins og Langholtskirkja gerir og verða sungnir messuliðir á latínu frá tíma Guðbrands biskups. Veitingar í lok stundarinnar.
Þegar Langholtskirkja var vígð 1984 voru liðin 400 ár frá því að Guðbrandur Þorláksson biskup á Hólum gaf út fyrstu biblíuna á íslensku. Því var Langholtskirkja einnig nefnd kirkja Guðbrands biskups í því skyni að halda nafni þessa merka biskups á lofti, en enginn önnur kirkja á landinu ber nafn hans.
Herder Anderson hefur undanfarin 2 ár gefið sóknarkirkjunni sinni altarisdúk og klæði sem og hökla og stólur sem hann hefur sjálfur saumað með harðangurs- og klaustursaumi. Hann hefur einnig gefið muni og húsgögn sem prýða hina nýju kapellu sem nú verður helguð, þar á meðal stóran glerskáp sem mun geyma skrúða kirkjunnar. Eru þessir munir gefnir í minningu Guðbrandar Hlíðar en nú eru 50 ár liðin frá því þeir hófu sambúð. Guðbrandur Hlíðar lést á gamlársdag 2000.
Eftir helgun kapellunnar verður boðið upp á súpu og tertu í safnaðarheimilinu.
Jón Helgi Þórarinsson, 20/11 2007 kl. 8.56