Langholtskirkja

 

Jólatónleikar Graduale Nobili við kertaljós laugardagskvöldið 8. des kl. 22

Hörpuleikur, einsöngur. Stórkostlega falleg jólatónlist eftir Rutter og Britten.
Hinir árlegu jólatónleikar Graduale Nobili verða laugardagskvöldið 8. desember kl 22. í Langholtskirkju. Stjórnandi er Jón Stefánsson.

Að venju verða flutt verkin „Dancing Day“ eftir John Rutter og „Ceremony of Carols“ eftir Benjamin Britten. Þeir Britten og Rutter eru meðal fremstu tónskálda okkar tíma.

Graduale Nobili var stofnaður haustið 2000 og er skipaður 24 stúlkum völdum úr hópi þeirra sem sungið hafa með Gradualekór Langholtskirkju. Kórinn hefur hlotið hástemmt lof gagnrýnenda, unnið til verðlauna í alþjóðlegum kórakeppnum og verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna og menningaverðlauna DV.

Á efnisskránni eru tvö verk fyrir kvennakór og hörpu, hið fyrra, „Dancing Day“ var frumflutt i dómkirkjunni í Coventry 26. janúar 1974. Verkið er byggt á sex jólasöngvum við latneska og enska texta, m.a. hið þekkta lag „Coventry Carol“. Höfundur þess John Rutter er fæddur í London þann 24. september 1945. Hann er eitt af þekktari tónskáldum samtímans. Rutter er frægastur fyrir jólasöngva (carols). Söngvar hans eru sérstaklega vinsælir í hinum enskumælandi heimi og í þættinum „Today Show“ á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC var hann til dæmis kallaður „mesta núlifandi tónskáld og stjórnandi kórtónlistar“ Um jólasöngva segir Rutter „Smáir hlutir hafa alla tíð heillað mig og jólasöngvar eru einskonar samþjappað form tónlistar. Mér finnst þeir vera heillandi litlir hlutir sem snerta fólk í einfaldleika sínum.“

Seinna verkið er „Ceremony of Carols“ eftir Benjamin Britten (1913-1976). Britten samdi þetta undursamlega jólaverk eftir þriggja ára happasæla dvöl í Bandaríkjunum. Hann tók sér far heim um miðjan mars árið 1942 með sænsku flutningaskipi. Ferðin tók nærri mánuð og lenti hann í allmiklu volki. Í ferðinni hóf hann að semja þetta verk fyrir þríradda kór og hörpu.

Umsagnir um tónleikana :
„Tímalaus Englakór“
„Hörpuleikurinn var snilldarlegur og söngurinn ekki af þessum heimi“
„Magnaður tónaseiður“
„Seiðandi blanda nútíðar og fortíðar“
„Maður gersamlega gleymdi stund og stað. Það er ekki oft sem ég verð bergnuminn á tónleikum, en það gerðist núna. Hvílík upplifun!“

Graduale Nobili
—Tímalaus Englakór—

Jón Helgi Þórarinsson, 3/12 2007 kl. 6.14

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS