Eivör með tónleika sunnudagskvöld 24 janúar kl. 20
Eivöru þarf vart að kynna. Hún hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna með einstökum hæfileikum sínum sem sumum finnst ekki af þessum heimi. Hún kom til Íslands árið 2002 og hafði þá í nokkur ár verið í söngnámi hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur í Færeyjum.
Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2003 sem besti flytjandi og söngvari og 2004 fékk hún leiklistarverðlaunin Grímuna fyrir tónlist og flutning í verkinu Úlfshamarssaga.
Á tónleikunum í Langholtskirkju flytur hún gömul og ný lög sem hún hefur samið. Nú fyrir jólin gaf Eivör út tónleikaplötuna Eivör Live.
Tónleikarnir eru á vegum Listafélags Langholtskirkju.
Miðasala er á midi.is
Jón Helgi Þórarinsson, 19/1 2010 kl. 23.57
