Langholtskirkja

 

Pétur og úlfurinn í Langholtskirkju

14. febrúar kl. 17.00.  Barna og fjölskyldutónleikar verða í Langholtskirkju sunnudaginn 14. Febrúar kl. 17.00.  Þar verður flutt tónverkið  Pétur og úlfurinn eftir Sergei Prokofieff,eitt frægasta tónlistarævintýri fyrir börn sem samið hefur verið.  Prokofieff samdi verkið í þeim tilgangi að kenna börnum að skilja og njóta tónlistar og fá verk hafa orðið eins til að efla skilning barna á klassískri tónlist.  Hann samdi bæði tónlistina og textann  og byggir verkið meðal annars á minningum úr bernsku sinni.  Pétur og úlfurinn hefur notið gífurlegra vinsælda og hljómsveitir um allan heim hafa það á verkefnaskrá sinni.

Hér í Langholtskirkju verður verkið í flutningi Láru Bryndísar Eggertsdóttur  organista og  leikið á orgel kirkjunnar í tilefni af 10 ára afmæli þess. Sögumaður er Örn Árnason leikari.

Auk þess koma fram á tónleikunum Krúttakórinn undir stjórn Huldu Daggar Proppé og Þóru Björnsdóttur, Kórskólinn undir stjórn Þóru Björnsdóttur og Graduale Futuri undir stjórn Rósu Jóhannesdóttur

Miðasala verður við innganginn

Jón Helgi Þórarinsson, 10/2 2010 kl. 13.24

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS