Krúttakórinn syngur - lok barnastarfs
Sunnudaginn 2. maí lýkur sunnudagaskólanum á þessu vori. Þá verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11, og verða börnin inni í kirkjunni allan tímann. Krúttakórinn syngur og verður dagskráin við hæfi allrar fjölskyldunnar. Á eftir verður öllum boðið upp á pylsur og djús. Ef veðrið verður gott verður farið í leiki úti við.
Í hádeginu verður einnig kökusala ungs fólks sem er á leið til Afríku til að kynna sér fræðslu og hjálparstarf íslenskra kristniboða.
Jón Helgi Þórarinsson, 27/4 2010 kl. 8.42