Útimarkaður og vorhátíð gekk frábærlega vel
Sunnudaginn 30. maí stóð Kvenfélag Langholtskirkju fyrir útimarkaði og vorhátíð í samstarfi við sóknarnefnd. Sigríður Ásgeirsdóttir og Helga Guðmundsdóttir fóru fyrir fjölda fólks sem undirbjó og sá um þessa hátíð og er hér komið að framfæri þökkum til þeirra allra.
Fötum og munum hafði verið safnað frá því í vor og fjölmargir gáfu á markaðinn sem hér er þakkað.
Margir listamenn komu og glöddu okkur og er þeim hér einnig þakkað fyrir þeirra mikilsverða framlag.
Hoppukastalinn var vinsæll meðal barnanna og sáu skátar um gæslu þar og kynntu einng sumarstarfið sitt.
Veðrið gat ekki verið betra, sólskin og sunnan gola.
Útimarkaðurinn gekk framar vonum og komu inn um 500 þúsund krónur sem rennur í starf Kvenfélagsins, en félagið hefur frá stofnun þess 1952 lagt gríðarlega mikið af mörkum til uppbyggingar húsnæðis og starfs í Langholtskirkju.
Skoða má myndir frá þessum viðburði með því að smella á MYNDIR hér til hægri á síðunni.
Jón Helgi Þórarinsson, 3/6 2010 kl. 10.54