Kórtónleikar föstudagskvöldið 9. júlí kl. 21 - Aðgangur ókeypis
Kórinn Collegium Cantorum frá Dómkirkjunni í Uppsala er á tónleikaför um Ísland 3. - 9. júlí, og syngur í Langholtskirkju 9. júlí kl. 21.
(Athugið tímann - en einhvers staðar var auglýst kl. 20)
Stjórnandi kórsins er Olle Johanson dómorganisti við Dómkirkjuna í Uppsala.
Á efnisskránni er úrval af kirkjutónlist, allt frá eldri verkum til sænskra nútímaverka. Kórinn syngur einnig klassísk sænsk vor- og sumarljóð.
Aðgangur er ókeypis.
Jón Helgi Þórarinsson, 6/7 2010 kl. 9.09