Skráning í fermingarstarfið stendur yfir
Byrjað er að skrá þau börn sem ætla að taka þátt í fermingarstarfi Langholtskirkju veturinn 2010 - 2011.
Búið er að senda bréf til allra bara í sókninni sem fædd eru 1997.
Þau börn sem ekki hafa fengið umrætt bréf eru beðin um að hafa samband við Langholtskirkju og fá bréfið sent. Ekki er víst að við höfum réttan lista með nöfnum barnanna undir höndum.
Bréfið má lesa hér á heimasíðu Langholtskirkju, FERMINGAR.
Fermingarstarfið hefst með guðsþjónustu og fundi sunnudaginn 29. ágúst kl. 11.
Jón Helgi Þórarinsson, 20/8 2010 kl. 17.57