Langholtskirkja

 

Séra Árelíus - Aldarminning

7. september verða liðin 100 ára frá fæðingu séra Árelíusar Níelssonar. Hann var sóknarprestur við Langholtsprestakall frá stofnun þess 1952 og til 1980.

Samkoma verður haldin í safnaðarheimilinu af þessu tilefni kl. 20 þann 7. september. Samferðarfólk hans bregður upp myndum að prestinum. kennaranum, æskulýðsleiðtoganum og fjölskylduföðurnum. Sálmar verða fluttir af einsöngvara og í fjöldasöng. Opnuð verður sýning á munum og myndum sem tengjast séra Árelíusi.
Boðið verður upp á kaffiveitingar. Allir velkomnir.

Jón Helgi Þórarinsson, 1/9 2010 kl. 22.48

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS