Messa og sunnudagaskóli 22. janúar
Messa kl. 11. Jóna G. Kolbrúnardóttir syngur einsöng. Jón Stefnánsson leikur á orgel. Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Messuþjónar sjá um ritningarlestur og aðstoða við altarisgöngu. Sunnudagaskóli verður á sama tíma, við byrjum öll saman í kirkjunni og svo halda börnin í safnaðarheimilið. Sunnudagaskólakennarar eru Kristín Sveinsdóttir og Aron Bjarnason. Boðið upp á kaffisopa, djús og spjall að helgihaldinu loknu. Verið hjartanlega velkomin!
Sigrún Óskarsdóttir, 19/1 2012 kl. 19.51