Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 19. febrúar kl. 11
Messa og sunnudagaskóli. Við hefjum stundina saman í kirkjunni. Eftir ritningarlestra sem messuþjónar sjá um fara börnin í safnaðarheimilið með Ingunni og Aroni. Dagbjört Andrésdóttir syngur einsöng. Organisti Jón Stefánsson. Prestur Sigrún Óskarsdóttir. Messuþjónar bjóða upp á kaffi og djús að helgihaldi loknu. Verið hjartanlega velkomin í Langholtskirkju.
Sigrún Óskarsdóttir, 18/2 2012 kl. 11.21