Langholtskirkja

 

Fermingar

Fermingarstarfið veturinn 2009 - 2010

Nýjasta bréf til fermingarbarna og foreldra var sent út 13. janúar 2010. Það má lesa hér fyrir neðan.
Fyrirspurnir má senda inn á jonhelgi (hja) langholtskirkja.is

Börnin eiga að mæta næst 19. janúar á milli kl. 14.30 og 16 og skrá sig í litla hópa. Þau sem ekki komast þá eru beðin um að hringja í kirkjuna.

Langholtskirkja

12. janúar 2010

Kæru fermingarbörn og foreldrar.

Gleðilegt ár og við þökkum fyrir góð kynni og samstarf á síðasta ári.

Nú hefjum við aftur leik þar sem frá var horfið, með nokkrum breytingum þó.

Við viljum gjarnan hitta ykkur fermingarbörn í minni hópum en verið hefur, því þannig getum við spjallað betur saman en í stórum hópi, svarað spurningum ykkar og farið yfir ýmis atriði sem þið þurfið að kunna, fara yfir könnunina sem þið tókuð í desember og hjálpað ykkur að velja ritningarvers fyrir fermingardaginn. Í stórum hópi er því miður oft lítill tími til samtals og lítið næði.

Við ætlum að hitta ykkur kæru fermingarbörn 26. – 28. Janúar og 2. – 4. febrúar. Ætlunin er að skipta ykkur í 4 - 5 manna hópa og eiga með ykkur ca 45 mín. samveru. Við munum hittast tvisvar í þessum hópum. Þar á eftir munum við hittast öll saman, og skipta í hópa til að undirbúa messu 14. mars kl. 11, þar sem öll fermingarbörnin hafa hlutverk og taka þátt.

Skráning í hópana
Þið, fermingarbörn, eigið að koma í safnaðarheimilið
þriðjudaginnn 19. janúar á milli kl. 14.30 og kl. 16
og skrá ykkur í hópa og fá gögn hjá okkur. Þau sem ekki komast geta hringt í kirkjuna á þessum tíma (5201300) en við munum hringja í þau sem ekki hafa samband.
Þau fermingarbörn sem ekki tóku könnunina í desember þurfa að taka hana á þriðjudaginn og mæta þá ekki síðar en kl. 15 til þess. Ef þið hafið ekki spurningarnar og svörin þá getið þið sótt slíkt blað til kirkjuvarðar.

Upplýsingar um hvenær þið eigið að koma verður hægt að sjá á heimasíðu Langholtskirkju undir liðnum Fermingar.

26. – 28. janúar Hittumst í litlum hópum
2. – 4. febrúar Hittumst í litlum hópum

Sunnudagskvöldið 14. febrúar kl. 19.30 og sunnudagskvöldið 28. febrúar kl. 19.30 koma öll fermingarbörnin til að undirbúa messuna og fleira.

Sunnudagskvöldið 14. mars kl. 19.30 verður síðasta fræðslusamveran, og m.a. verður þá könnun úr efni vetrarins og utanbókarlærdómi.

Mánudaginn 1. febrúar kl. 20 verður sameiginlegur fundur með fermingarbörnum og foreldrum. Þar verður fjallað um væntanlegar fermingar og undirbúning þeirra, en einnig verður rætt um altarissakramentið, inntak þess og gildi og hvenær rétt sé að börn fari fyrst til altaris.

Þið fermingarbörn þurfið að sjálfsögðu að mæta vel í þá tíma sem eftir eru. Langflest ykkar hafa mætt vel í vetur en fáein þurfa að taka sig á og hugsanlega mæta í aukatíma vegna þess sem þau hafa misst af tímum. Um það ræðum við þegar þið komið í næstu tíma.

Fáein fermingarbörn eiga enn eftir að bóka fermingardag. Æskilegt er að ganga frá því sem fyrst, og er hægt að senda tilkynningu um það í tölvupósti á jonhelgi (hja) langholtskirkja.is.

Flest fermingarbarnanna hafa mætt ágætlega í messur, en þær eru hluti af fræðslunni. Ég veit þó að sum þurfa að taka sig á, en þau geta hæglega skilað sínum messufjölda ef þau mæta nokkuð vel fram að páskum.

Fermingar hefjast í lok mars, og lýkur fræðslunni um miðjan mars. Síðari hluta mars verða æfingar fyrir fermingarnar sjálfar. Þar munu börnin máta fermingarkyrtlana sem að kvenfélagið á og þarf að hafa hreina og fína fyrir athafnirnar.

· Miðvikudaginn 17. mars kl. 15 mæta þau börn sem fermast á pálmasunnudag 28. mars.

· Miðvikudaginn 17. mars kl. 16 mæta þau börn sem fermast annan páskadag, 5. apríl mars.

· Miðvikudaginn 24. mars kl. 15 mæta þau börn sem fermast sunnudaginn 11. apríl.

· Miðvikudaginn 24. mars kl. 16 mæta þau börn sem fermast sunnudaginn 18. apríl.

· Miðvikudaginn 24. mars kl. 17 mæta þau börn sem fermast hvítasunnudaginn 23. maí.

Lokaæfingar fermingarbarna með foreldrum verða síðan sem hér segir:

25. mars, fid, kl. 17 - v fermingar pálmasunnudag, 28. mars
25. mars, fid, kl. 18 - v fermingar annan páskadag, 5. apríl
8. apríl, fid, kl. 18 - v fermingar 11 apríl
16. apríl, föd, kl. 18 - v fermingar 18. apríl
20. maí, fid, kl. 18 - v fermingar hvítasunnudag 23. maí

Minnt skal á að fermingin á pálmasunnudag er kl. 13.30 en aðrar fermingar eru kl. 11.

Upplýsingar um það sem er á döfinni í fermingarstarfinu má finna á heimasíðu Langholtskirkju, oft á forsíðu en alltaf undir liðnum Fermingar.

Þið hafið samband ef þið þurfið að fá upplýsingar eða viljið ræða við okkur prestana um fræðsluna eða annað.

Við hlökkum til að sjá ykkur á næstu dögum og vikum.

Bestu kveðjur

Jón Helgi Þórarinsso, sóknarprestur

Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · WP · Kerfi RSS