Kórastarf
Kórastarf
Upplýsingar um starfið og innritun er í síma 520 1300 á skrifstofutíma eða senda tölvupóst á netfang skólans, klang@kirkjan.is
KÓR LANGHOLTSKIRKJU æfir á miðvikudagskvöldum kl. 19.30 - 22.30 - Getur bætt við örfáum röddum sem geta tekið að sér einsöng í messum og á tónleikum.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
KÓRSKÓLI LANGHOLTSKIRKJU veitir afburða tónlistaruppeldi undir leiðsögn velmenntaðra kennara og tónlistarfólk í fremstu röð. Starfið skiptist í þrjár deildir fyrir aldurshópinn fjögurra til fjórtán ára. Kórskólinn fellur undir Frístundakort Reykjavíkurborgar.
Starfsárið 2010 - 2011
a. KRÚTTAKÓRINN æfir á miðvikudögum, yngri deild (fjögurra og fimm ára) kl. 17 - 17.40 og eldri deild (fimm til sex ára) frá 17.30 - 18.10. Stjórnendur eru Kristín Sveinsdóttir og Þóra Björnsdóttir. Kennslugjald kr. 17.000 önnin
b. KÓRSKÓLI LANGHOLTSKIRKJU æfir á þriðjudögum og fimmtudögum frá 17 - 18.20. Kennarar eru Þóra Björnsdóttir og Harpa Harðardóttir söngkona. Kórskólinn syngur í messum og á aðventukvöldi þar sem hann flytur Lúsíuleik, einnig sýnir hann jólahelgileikinn ‘Fæðing frelsarans’ á jólatónleikum Kórskólans og í fjölskyldumessu annan dag jóla. Fáein pláss eru laus í kórskólanum. Kennslugjald kr. 33.000 önnin
c. GRADUALE FUTURI er yngri barnakór kirkjunnar og æfir á þriðjudögum og fimmtudögum frá 17 – 19 og hugsaður fyrir aldurshóp 10 – 14 ára. Stjórnandi er Rósa Jóhannesdóttir og raddþjálfari Harpa Harðardóttir söngkona og söngkennari. Nokkur pláss eru laus í kórnum. Kennslugjald kr. 33.000 önnin
Hér tilhiðar, undir Graduale Futuri má heyra og sjá kórinn syngja nokkur lög á youtube, eins og þetta /YFir kaldan eyðisand):
GRADUALEKÓR LANGHOLTSKIRKJU æfir þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17 – 19. Kórinn er unglingakór fyrir aldurshópinn 14 – 18 ára og tekur við af starfi Kórskólans. Kórinn er rekinn af foreldrafélagi. Nokkur pláss eru laus í kórnum. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
GRADUALE NOBILI er úrvalskór stúlkna sem hafa sungið með Gradualekórnum. Fjöldi kórfélaga er bundinn við 24 og er kórinn fullskipaður. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Auk þessa kórastarfs er alltaf söngstund með öldruðum á miðvikudögum þannig að segja má að tónlistarstarfið spanni öll æviskeið.