Kvennablóminn
Kæri kvennablómi
Veist þú að í hverfinu er skemmtilegt félag fyrir konur á öllum aldri, sem heldur fund fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Í fyrra bauð félagið líka upp á prjónakaffi tvisvar í mánuði og í vetur verður einnig kenndur bútasaumur á sama tíma. Dagskrá vetrarins er afar spennandi eins og má lesa hér á eftir.
Prjóna- og bútasaumskaffið verður 2. og 4. mánudag hvers mánaðar í vetur, í fyrsta sinn 14. sept. kl. 20-22, í safnaðarheimili Langholtskirkju. Í fyrra voru það um 40 konur á öllum aldri (12 til 92 ára) sem komu í prjónakaffið alls staðar að úr borginni. Allar konur eru velkomnar.
Nóvember
3. Breytingaskeið karla og kvenna.
Ólafur Håkanson læknir verður með mjög skemmtilegan og áhugaverðan fyrirlestur um breytingaskeið karla og kvenna. Að sjálfsögðu er körlum boðið að koma með.
7. Basarinn
Árlegur basar á laugardegi þar sem einnig er selt handverk og kökur. Tekið er á móti munum og kökum eftir kl. 18 daginn áður og fyrir hádegi sama dag. Afar vel sóttur og skemmtilegur.
30. Laufabrauðsgerð.
Nýjung í starfi kvenfélagsins. Skemmtum okkur saman á aðventunni.
Desember
1. Jólafundur
kennsla í pakkaskreytingum og skipst verður á litlum jólagjöfum. Rithöfundur mun lesa úr nýju verki sínu og svo verður sungið.
Janúar
Janúarfundurinn
er sameiginlegur með Laugarnessókn og Ássókn. Hann verður í Ássókn og er forvitnilegt að vita hvað verður þar á dagskrá. Rétt er að geta þess að ungum konum hefur fjölgað mjög í félaginu i Laugarnesi.
Febrúar
2. Aðalfundur
gott að koma þar á framfæri hugmyndum fyrir næsta vetur. Allar eru þær vel þegnar. Dagskrá að öðru leyti ekki að fullu ákveðin.
Mars
2. Afmælisfundur
félagið verður 57 ára. Jóna Björg Jónsdóttir, fatahönnuður, ,jbj.is´ verður með tískusýningu og eins og venja er í afmælum þá bjóðum við gestum úr öðru félagi, gleðjumst og borðum saman.
Apríl
6. Vorfundur
hugmyndir um vor- eða haustferð. Dagskrá að öðru leyti óákveðin.
Maí
8./15. SÚKK
Stjórn félagsins er þannig skipuð:
- Kristjana Gisela Herbertsdóttir, formaður
- Kristjana Kristjánsdóttir, gjaldkeri
- Ingibjörg Tönsberg, ritari
- Helga Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
- Sigríður Ásgeirsdóttir, meðstjórnandi
- Anna Þóra Paulsdóttir, meðstjórnandi
Árgjald félagsins er kr. 2.500 og kaffigjald á fundi er kr. 500.
Skráning í félagið er í síma 5201300 eða á netfangið : annatora[hjá]langholtskirkja.is
Stjórn Kvenfélags Langholtssóknar
Prjónakaffið/bútasaumur:
September: 14.
Október: 12., 26.
Nóvember: 9., 23.
Desember: 14.
Janúar: 11., 25.
Febrúar: 8., 22.
Mars: 8., 22.
Apríl: 12., 26.
Maí: 10., 24.
September
19. Haustferð
Við ætlum á Safnasvæðið á Akranesi, þar sem Jón Allansson tekur á móti hópnum og verður með leiðsögn. Kaffistofa er á safninu þar sem við getum sest niður eftir á og fengið hressingu. Frá safninu liggur leiðin í Hallgrímskirkju á Hvalfjarðarströnd þar sem sr. Kristinn Jens Sigurþórsson segir okkur frá kirkjunni. Að lokum verður kvöldmatur á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði og svo ekið heim. Maturinn kostar kr. 4.000 og ókeypis í rútuna fyrir félagsmenn, en aðrir borga kr. 1000.
Þátttaka tilkynnist í síma 5201300 eða á netfangið annatora[hjá]langholtskirkja.is, í síðasta lagi 14. september.
28. Sláturgerð í safnaðarheimilinu. Nýjung hjá kvenfélaginu.
Við bjóðum upp á kennslu í sláturgerð. Allir velkomnir. Þátttaka tilkynnist í síma 5201300 eða á netfangið: annatora[hjá]langholtskirkja.is fyrir 24. sept.
Prjónakaffið fellur niður vegna þessa.
Október
6. Matreiðsla.
Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur og rithöfundur kemur í heimsókn og sýnir hvernig má matreiða hollan og ódýran mat. Hún kynnir einnig matreiðslubókina sína og kvöldhressingin er réttir úr bókinni hennar.