Langholtskirkja

 

Leiga á safnaðarsal

Veislusalir Langholtskirkju.
Veislusalir í safnaðarheimili Langholtskirkju eru tveir, annar tekur allt að 120 manns og hinn um 80 manns í sæti. Stærri salurinn er mjög fallegur og er einkar heppilegur fyrir hverskonar veisluhöld, svo sem brúðkaup, fermingar, erfidrykkjur, afmæli,fundi, námskeið eða aðrar samkomur, eins er með minni salinn. Einnig er hægt að leigja þá saman.

Velkomin að skoða, við tökum hlýlega á móti þér.

Hægt er að koma og skoða salina á opnunartíma kirkjunnar á milli 10.00 - 12.00 og og 13.00 - 15.00 þriðjudaga til fimmtudags en ekki er opið á mánudögum og föstudögum. Mun kirkjuvörur sýna og svara þeim spurningum sem kunna að koma upp.
Því hvetjum við alla sem eru að huga að halda veislu eða aðra uppákomu að koma og skoða. Sjón er sögu ríkari. Gott er að hafa samband áður en komið er í heimsókn, því að ekki er hægt að sýna salina ef dagskrá er í gangi.

Bókanir og upplýsingar.

Bókanir og upplýsingar um Veislusalinn Langholtskirkju veitir kirkjuvörður Margrét Guðjónsdóttir sími 5201300
Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá Hrefnu Zoëga gsm. 848-9365
Netfang: hrefnaz@hotmail.com

Gott að vita.
Þar sem að söfnuðurinn er ekki með starfsmann sem fylgir húsnæðinu er sá háttur hafður á við útleigu á veislusalnum í safnaðarheimilinu að leigutaki ræður jafnhliða Hrefnu Zoëga til þess að hafa umsjón með veislunni. Hrefna er um leið tengiliður við söfnuðinn. Farsími Hrefnu er 848-9365.
Leiga á stóra veilsusal er 45. þús krónur en 25. þús fyrir minni salinn. Ef báðir eru leigðir saman er upphæðin 55. þús. Athugið að þessi upphæð er óháð fjölda gesta. Innifalið í þessari upphæð er afnot af húsnæðinu, rafmagn og hiti, skúringar á eftir og almennur borðbúnaður. Það sem ekki er innifalið er vinna við uppstillingu og frágang í sal, dúkaleiga né vinna Hrefnu Zoëga og hennar fólks.
Mjög hófleg meðferð léttra vína og bjórs er möguleg í veislum í safnaðarheimilinu. Veislum þarf að vera lokið um miðnætti. Ekki er gert ráð fyrir því að reykt sé í húsinu. Kvaðir hvað matarkaup frá sérstökum aðilum eða varðandi önnur aðföng eru engar.
Veitingasala í safnaðarheimili Langholtskirkju
Sólheimum 11-13
104 Reykjavík
Kt.Safnaðarheimilsins 550997-2749
Sími á veislutíma: 848-9365 Hrefna Zoëga, annars hjá kirkjuverði í 5201300

     

    Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS