Langholtskirkja

 

Listafélag Langholtskirkju

Kór Langholtskirkju flytur Messías eftir Handel í Langholtskirkju

sunnudaginn 20. maí kl. 20.

Kór Langholtskirkju flytur Messías eftir Handel í Langholtskirkju sunnudaginn 20. maí kl. 20. Kammersveit Langholtskirkju leikur með og einsöngvarar eru allir úr röðum kórfélaga. Konsertmeistari er Ari Þór Vilhjálmsson og stjórnandi Jón Stefánsson.

Kórinn flutti verkið fyrst 1981 en þetta verður í tuttugusta og fjórða skiptið sem kórinn syngur verkið á tónleikum. Síðast var verkið flutt á fimmtíu ára afmæli kórsins ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands og voru þá kórfélagar 126 en mjög margir eldri félagar sungu þá með. Í þetta sinn eru kórfélagar þrjátíu og tveir, átta í hverri rödd. Eftir skipulagsbreytingar haustið 2008 var fækkað í kórnum og kröfur um kunnáttu stórhertar. Síðan hefur það verið stefna að kórfélagar syngi öll einsöngshlutverk. Á tónleikunum syngja tíu kórfélagar einsöng en þeir eru allir komnir langt í söngnámi.

Messías er eitt mesta kórverk tónbókmenntanna og sennilega er ekkert verk flutt jafn oft. Handel samdi það á þrem vikum árið 1741 og haft var eftir honum að þegar hann hafi lokið við Hallelújalórinn hafi hann verið yfirkominn af geðshræringu.

Verkið skiptist í þrjá hluta.

I Spádómur um komu Krists, heimsókn englanna til fjárhirðanna og fæðingin.

II Þjáning, krossfesting og sigur yfir dauðanum með Hallelújakórinn sem hápunkt.

III Upprisan, Ég veit að lausnari minn lifir, fyrirheitið um eilíft líf og lofgjörð Opinberunarbókarinnar Honum sé lofgjörðin og heiðurinn og dýrðin og krafturinn um aldir alda. Amen.

Miðasalan fer fram á midi.is

Á föstudaginn langa, 6. apríl kl. 17.00  verða tónleikar með Andra Birni Róbertssyni, bassa og strengjakvartettinum Inegal en hann skipa Eygló Dóra Davíðsdóttir, fiðla,  Lucas Brunnert, fiðla, Joachim Kelber, víola og Nika Brnic, selló. Jón Stefánsson leikur á orgel.  Nika er frá Slóveníu og styrkir Slóvenska sendiráðið í Kaupmannahöfn þessa tónleika. Þýska sendiráðið hér á Íslandi styrkir einnig þessa tónleika.

Andra Björn þarf vart að kynna hér en

Andri Björn Róbertsson bass-barítón fæddist í Reykjavík 1989. Hann byrjaði að syngja í kór fimm ára gamall, byrjaði í kórastarfinu í Langholtskirju níu ára gamall og söng í kórum kirkjunnar undir stjórn Jóns Stefánssonar til 21 árs aldurs. Hann byrjaði í söngtímum tíu ára gamall hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, sem var kennari hans þangað til hann útskrifaðist með burtfararpróf frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2010. Andri hefur sótt einkatíma og masterklassa hjá t.d. Richard Stokes, Kristni Sigmundssyni, Ian Partridge, Richard Bonynge, Sir Thomas Allen, Dalton Baldwin, Dennis O‘Neill, José Carreras and Dame Kiri Te Kanawa. Hann sótti Solti Te Kanawa Accademia di bel canto á Ítalíu sumarið 2009 í boði Dame Kiri. Andri hefur m.a. sungið Sarastró í Töfraflautunni (Mozart) og Fígaró í Brúðkaupi Fígarós (Mozart), auk þess að hafa sungið í Jóhannesarpassíunni og kantötum eftir Bach, Sköpuninni eftir Haydn og Krýningarmessunni og Sálumessu eftir Mozart. Hann hefur einnig haldið ljóðatónleika bæði á Íslandi og erlendis, og hefur sungið í tónleikasölum á borð við Wigmore Hall og St Martin in the Fields. Andri hefur unnið til þónokkurra verðlauna fyrir söng sinn, t.a.m.  einleikararkeppni SÍ og LHÍ 2010, Major van Someren-Godfery verðlaunin 2010 fyrir ensk sönglög, Joan Chissell verðlaunin 2011 fyrir Schumann-ljóð, Marjorie Thomas ljóðaverðlaunin 2011, auk þess að vinna önnur verðlaun og áhorfendaverðlaunin í Maureen Lehane söngkeppninni í Wigmore Hall 2011, vinna önnur verðlaun í Richard Lewis/Jeans Shanks keppninni og syngja í úrslitum Oxford ljóðakeppninnar 2011. Hann stundar nú nám á mastersstigi við Royal Academy of Music í London, þar sem hann er partur af Song Circle ljóðadeildinni og Bach-kantötu tónleikaröðinni og mun hefja nám við óperudeild skólans haustið 2012. Kennarar hans eru Mark Wildman og Jonathan Papp.  Næstu verkefni eru m.a. Messa di Gloria eftir Puccini í Jersey, Krýningarmessan eftir Mozart í Southwold og hlutverk Sarastró í Töfraflautunni eftir Mozart hjá Bath Music Festival og West Green House Opera

Quartett Inegal hóf að leika saman i Lübeck haustið 2008, þegar allir meðlimir hans voru þar við nám i Tónlistarháskólanum. Síðan þá hefur kvartettinn verið undir styrkri handleiðslu prófessors Heime Müller en einnig hafa þau sótt tíma hja m.a. Prófessor Barböru Westphal, prófessor Troels Svane, meðlimum Vogler Quartett og Harald Schoneweg (Cherubini Quartett).

Kvartettinn hefur þegar komið víða fram og má þar nefna 200 ára afmælistónleika Mendelssohn i Kieler Schloss, á vegum Eutiner Festspiele í Eutin og ekki síst hinu árlega Brahms Festival í Lübeck þar sem þau léku 2. strengjakvartett Schönbergs við góðar undirtektir.

Kvartettinn hefur átt i góðu samstarfi við barokkguruinn Hans-Jürgen Schnoor og unnið með honum ýmis verkefni.

Haustið 2010 voru þau valin til að spila a tónleikum „Junge Künstler Live“ sem sendir voru út i beinni útsendingu á NDR og í framhaldi af því bauðst þeim að fara i upptökur hja NDR. Sú upptaka er nú í spilun hjá NDR-Kultur.

Verð fyrir félaga í Listafélagi Langholtskirkju kr. 2500, almennt verð kr. 3000

Með góðri kveðju

Margrét Guðjónsdóttir

Verkefnastjóri

Listafélags Langholtskirkju

Orgeltónleikar hjá Listafélagi Langholtskirkju

sunnudaginn 11. mars kl. 20.00

Orgelleikari Guðmundur Sigurðsson

Guðmundur Sigurðsson lauk Kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar árið 1996 undir handleiðslu Harðar Áskelssonar og burfararprófi frá sama skóla 1998. Vorið 2002 lauk hann Mastersprófi með láði frá Westminster Choir College í Princeton þar sem aðalkennari hans var prof. Mark A. Anderson.  Guðmundur hefur komið fram á tónleikum hérlendis og erlendis, bæði sem einleikari og meðleikari með kórum, hljóðfæraleikurum og einsöngvurum.  Guðmundur er kantor við Hafnarfjarðarkirkju og helsti ráðgjafi kirkjunnar við endurnýjun orgels kirkjunnar.  Leiddi sú vinna til þess að smíðuð voru tvö ný orgel í kirkjuna, annað í þýskum rómantískum stíl og hitt í þýskum barokkstíl.  Guðmundur er stofnandi og stjórnandi Barbörukórsins í Hafnarfirði. Hann hefur um árabil kennt orgelleik og nú kennir hann við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.  Guðmundur var formaður Félags íslenskra  organleikara / Organistadeildar FÍH á árunum 2004-2009.

Tónleikar Gradualekórs Langholtskirkju

Gradualekór Langholtskirkju heldur tónleika sunnudaginn 19. Febrúar kl. 20. Á efnisskránni verða m. a. tvær messur eftir Bob Chilcott Friðarmessa (Peace mass) og Litla jazzmessan (A Little Jazz Mass). Sú fyrri er við orgelundirleik en seinni með píanói. Undirleikari er Tómas Guðni Eggertsson en stjórnandi Jón Stefánsson.

Auk þessara verka flytur kórinn styttri verk og lög bæði íslensk og erlend.

Bob Chilcott fæddist 1955 og hefur alla ævi fengist við kórtónlist. Hann var í King’s College í Cambridge og kom þar oft fram sem einsöngvari m. a. í Requiem eftir Fauré (Pie Jesu). Í tólf ár söng hann með hinum heimsfrægu King’s Singers en árið 1997 sneri hann sér alfarið að tónsmíðum, mest kórtónlist og stór hluti hennar fyrir barna og unglingakóra. Hann er líka eftirsóttur stjórnandi og hefur verið gestastjórnandi heimsþekktra kóra í yfir tuttugu löndum í sex heimsálfum.

Messurnar tvær sem ramma tónleikana inn eru ólíkar. Friðarmessan var samin 1998 og frumflutt á alþjóðlegu barnakórahátíðinni í Chester í júní það ár. Hún var sérstaklega samin fyrir hátíðina. Hún byggir á hinum sígilda messutexta en auk hans er inngangur og niðurlag sem byggir á bæn heilags Frans frá Assisi: Drottinn, gjör mig að verkfæri friðar þíns. Þar notar tónskáldið stef sem byggir á gregorskum messusöng.

Litla jazzmessan var samin árið 2004 og frumflutt í New Orleans sama ár. Hún er einnig samin við hinn klassíska, latneska messutexta; Kyrie, Gloria, Sanctus, Benedictus og Agnus Dei. Hver kafli sýnir mismunandi stíltegundir jazzins svo sem „groove funk“, rokk, ballöðu og blues.

Gradualekórinn hefur farið í tónleikaferðir til Danmerkur. Færeyja, Portúgal (EXPO 98), Canada, (Niagara Falls International Music Festival og Nýja Íslands), Finnlands (2001) (kórakeppni í Tampere, næstbesti árangur barnakóra). Sumarið 2003 var kórinn boðinn í tónleikaferð til Finnlands þar sem hann var, einn fimm kóra úr fjórum heimsálfum, gestur á Sympatti kórahátíðinni. Árið 2005 fór kórinn í tónleikaferð um Baskahéruð Spánar og hélt einnig tónleika í Barcelóna. Vorið 2007 fór kórinn í tónleikaferð til Slóveníu. Sumarið 2009 tók kórinn þátt í alþjóðlegu tónlistarkeppninni í Olomouc í Tékklandi og hreppti silfurverðlaun í flokki afburða (superior) æskukóra og gullverðlaun í flokki kirkjutónlistar. Síðasta sumar fór hann í tónleikaferð til Skotlands og hélt tónleika í St. Giles dómkirkjunni í Edinborg og einnig í Hálöndum Skotlands þar sem íslenskur prestur, Sveinbjörn Björnsson, tók á móti kórnum með eftirminnilegum hætti. Minnistæðast ú ferðinni er e. T. V. Er kórinn söng þjóðsönginn við heimili Sveinbjörns Sveinbjörnssonar þar sem hann söng þjóðsönginn.

Miðaverð er kr. 2.000 og 1.500 fyrir félaga í Listafélagi Langholtskirkju.

Eivör

Sunnudaginn 22. janúar kl. 20.00

Eivör eins og hún er best! Berfætt með gítarinn

Miðaverð fyrir Listafélagaga kr. 2.500, almennt verð kr. 3.000.

Miðasala er á midi.is

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju

Eivør Pálsdóttir hefur samið nýtt jólalag fyrir jólasöngva Kórs Langholtskirkju.

Á tónleikunum í ár verður frumflutt nýtt jólalag eftir Eivøru sem hana dreymdi á dögunum. Lagið nefnir hún „Jólaminnir“ en í hrífandi fallegri þýðingu Eyþórs Árnasonar heitir það „Jólaminning.“ Lagið tileinkar hún öllum þeim sem ekki eru með okkur lengur og við söknum og sérstaklega á jólunum. Hún hefur sérstaklega í huga föður sinn sem lést á árinu.

Þetta eru þrítugustu og fjórðu jólasöngvarnir en fyrstu jólasöngvarnir fóru fram í Landakotskirkju 1978 og voru þá nýmæli hérlendis. Þrátt fyrir gífurlegt framboð af jólatónleikum hafa jólasöngvar Kórs Langholtskirkju haldið sínum tryggu áheyrendum sem kjósa kyrrláta hátíðarstemningu við kertaljós. Ásamt Kór Langholtskirkju syngur Gradualekór Langholtskirkju en stórnandi er Jón Stefánsson.

Gestakór verður Táknmálskórinn undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur en hann mun flytja á táknmáli nokkur laganna á tónleikunum með kórum kirkjunnar. Einsöngvari með táknmálskórnum er Kolbrún Völkudóttir en hún hefur vakið mikla athygli fyrir áhrifamikla túlkun sína og hlotið mikið lof fyrir kraftmikinn og tilfinningaþrunginn flutning.

Kórarnir flytja jólalög hvor fyrir sig og einnig allir saman, bæði hátíðleg og einnig með léttri sveiflu. Áheyrendur taka virkan þátt í almennum söng. Hljóðfæraleikararnir Hallfríður Ólafsdóttir og Arna Kristín Einarsdóttir leika á flautur, Monika Abendroth á hörpu og Lára Bryndís Eggertsdóttir á orgel. Um létta jazzsveiflu sjá Kjartan Valdemarsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á trommur.

Í hléi er boðið upp á rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur.

Einsöngvarar eru Andri Björn Róbertsson, Eivør Pálsdóttir, Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einnig syngja kórfélagar úr Gradualekór Langholtskirkju einsöng.

Tónleikarnir verða:
Föstudaginn 16. desember kl. 23
Laugardaginn 17. desember kl. 20 og 23
Sunnudaginn 19. desember kl. 20

Jólatónleikar Graduale Nobili

Sunnudagskvöldið 11. desember nk.kl 22.00  munum við halda árlega jólatónleika okkar, þar sem flutt verða verkin Dancing Day eftir John Rutter og Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten. Auk þessara verka flytjum við nokkrar íslenskar jólaperlur á borð við Hátíð fer að höndum ein, Nóttin var sú ágæt ein, og Jólasöng. Stjórnandi er Jón Stefánsson og Elísabet Waage leikur á hörpu.

Í ár fögnum við auk þess útgáfu nýrrar geislaplötu sem inniheldur bæði Dancing Day og Ceremony of Carols og verður hún til sölu á tónleikunum.

Eftir tónleikana bjóðum við ykkur svo í heimabakaðar eðalsmákökur að hætti Nobili :)

Miðaverð er 2000 krónur, 1500 krónur fyrir meðlimi Listafélags Langholtskirkju eða í forsölu hjá kórmeðlimum.

Við vonumst til að sem flestir gefi sér tíma til að slaka á og eiga notalega stund við kertaljós, jólatónlist og smákökur:)

Hinn 20. nóvember kl. 20 heldur

Kór Langholtskirkju tónleika á messudegi heilagrar Sesselju.

Meðal verka má nefna Lux aurumque (Ljós og gull) eftir Eric Whitacre sem var samið 2008 og tónskáldið flutti á veraldarvefnum árið 2009 með 185 söngvurum í tólf löndum en yfir 2.7 milljónir hafa horft á það á youtube.

Eric Whitacre (1970) er bandarískt tónskáld, stjórnandi og fyrirlesari. Hann er eitt vinsælasta og mest flutta kórtónskáld sinnar kynslóðar. Hann fékk þá hugmynd árið 2010 að setja saman kór á veraldarvefnum en þá fluttu 185 söngvarar í tólf löndum verkið Lux aurumque sem yfir 2.7 milljónir hafa skoðað á youtube. Í apríl á þessu ári bætti hann um betur og flutti verk sitt Sleep með 2052 söngvurum í 58 löndum. Með þessu hefur hann náð til unnenda kórtónlistar með nýjum hætti. Kór Langholtskirkju hefur áður flutt eftir tónskáldið verkið When David heard.

Auk þess eru á efnisskránni verk eftir Arvo Pärt, Knut Nystedt, Morten Lauridsen, og Þorkel Sigurbjörnsson. Þetta eru allt núlifandi tónskáld og eiga það sameiginlegt að hafa náð mikilli hylli kórfólks um víða veröld enda gera verkin bæði miklar kröfur til kórsins og eru jafnframt afar áheyrileg.

Norska tónskáldið Ola Gjeilo (1978) skaust upp á stjörnuhimin kórtónskálda með verkum sínum Sanctus og Agnus Dei sem eru samin á árunum  2008/9 og hafa slegið rækilega í gegn og verið flutt af kórum um víða veröld. Gjeilo lauk námi í jazz – og klassískum píanóleik frá Tónlistarháskólanum í Osló. Þaðan lá leiðin í Konunglega tónlistarháskólann í London og síðan í Julliard háskólann í New York þaðan sem hann lauk meistaragráðu í tónsmíðum 2006.

Morten Lauridsen (1943) er fæddur í Washingtonfylki í Bandaríkjunum, sonur danskra innflytjenda. Hann var sæmdur æðsta heiðursmerki Bandaríkjanna (National medal of Arts) árið 2007 „fyrir hinar geislandi kórtónsmíðar sínar sem sameina músíkalska fegurð, kraft og andlega dýpt sem hafa heillað áheyrendur um víða veröld.“

Kórtónlist hans einkennist af dulúð og má finna áhrif frá tónskáldum endurreisnartímans, Gregorskum kirkjusöng sem og hlýju seinni tíma tónskálda svo sem Debussy, Ravel, Fauré, og Duruflé. Ave Maria sem kórinn flytur á tónleikunum er samið 1997 en áður hefur Kór Langholtskirkju flutt eftir Lauridsen O Magnum Mysterium.

Þorkell Sigurbjörnsson (1938) samdi Davíð 92 fyrir Kór Langholtskirkju er kórinn kynnti íslenska kirkjutónlist á norræna kirkjutónlistarmótinu í Helsinki 1978. Kórinn hafði farið í sömu erindagjörðum til Lundar í Svíþjóð 1974 og lítið hafði gerst í samningu kórtónlistar í millitíðinni. Þorkell var fenginn til að bæta úr því og samdi fyrir ferðina Davíð 92 og Hósíanna sem frumflutt voru í Gömlu kirkjunni í Helsinki. Einnig samdi Jón Ásgeirsson verkið Orðskviðir Salómons fyrir sömu ferð.

Árið 1990 fór Kór Langholtskirkju með Sinfóniuhljómsveit íslands undir stjórn Petri Sakari til Tampere til að syngja á tónleikum í tilefni vígslu Tampere talo tónleikahallarinnar. Í sömu ferð söng hann við messu í dómkirkjunni í Tampere og samdi Þorkell Stælið fyrir þá messu en textinn er Gamla testamentislestur 18. sunnudags eftir trinitatis sem messuna bar upp á.

Í Kór Langholtskirkju eru 32 söngvarar en þetta er fjórða árið sem kórinn starfar eftir nýju skipulagi þar sem kórinn var minnkaður en gerðar meiri kröfur til söngvaranna.

Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson.

Almennt miðaverð: 2000 kr
Listafélag Langholtskirkju: 1500 kr
Námsmenn: 1500 kr

Með góðri kveðju

Margrét Guðjónsdóttir

Verkefnastjóri

Listafélags Langholtskirkju

Vortónleikar Kórs Langholtskirkju

Kór Langholtskirkju, ásamt kammersveit, heldur tónleika í Langholtskirkju sunnudaginn 8. maí kl. 20.

Stjórnandi er Jón Stefánsson

Á efnisskránni er Te Deum fyrir kór, einsöngvara og kammersveit eftir Marc-Antonie Charpentier. Verkið er samið á síðari hluta 17. aldar og er fullt af gleði og birtu. Flestir þekkja upphaf verksins sem er prelúdía í rondóformi og er kynningarlag Evrópusöngvakeppninnar.

Á sömu tónleikum verður frumflutt nýtt verk eftir Misti Þorkelsdóttur með styrk frá Musica nova. Verkið heitir In via aeterna eða Á hinum eilífa vegi. Textinn er fenginn úr Davíðssálmi 139 Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig.

Einsöngvarar eru þrettán og koma allir úr röðum kórfélaga en flestir kórfélaganna hafa lokið eða stunda söngnám.

Miðasala fer fram í Langholtskirkju og miðaverð er kr. 3.500 en 2.500 fyrir félaga í Listafélagi Langholtskirkju, nemendur og eldri borgara

Föstudaginn langa, 22. apríl kl. 17

syngur Andri Björn Róbertsson bassi

ásamt strengjakvartett sem Halla Steinunn Stefánsdóttir leiðir

< ![endif]–>

Meðal verka einsöngskantatan Ich habe genug BWV 82 eftir J. S. Bach og bassaaríur úr Jóhannesar- og Mattheusarpassíum. Andri Björn hefur alist upp í kórastarfi í Langholtskirkju frá níu ára aldri í gegnum Gradualekór Langholtskirkju og Kór og Kammerkór Langholtskirkju og lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík vorið 2010. Kennari hans var alla tíð Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Hann stundar nú nám við Konunglega tónlistarskólann í London. Fyrir nokkrum árum vakti hann athygli hinnar heimsfrægu söngkonu Kiri Te Kanava og hefur verið undir sérstakri vernd hennar síðan og m. a. oft komið fram með henni á tónleikum. Halla Steinunn Stefánsdóttir leiðir strengjakvartettinn sem leikur með á tónleikunum. Óbóleikari er Daði Kolbeinsson.

Miðaverð á tónleikana er kr. 2.500 fyrir félaga Listafélagsins, almennt verð kr. 3.000

Miðar eru seldir á midi.is

Sætin eru ekki númeruð

Vortónleikar Graduale Nobili

Kerfi RSS