Langholtskirkja

 

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju

Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða föstudaginn 16. desember kl. 23. laugardaginn 17. desember kl. 20 og 23 og sunnudaginn 18. desember kl. 20. Miðasala er á midi.is. Einsöngvarar: Andri Björn Róbertsson, Eivør Pálsdóttir, Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Sjá Listafélag Langholtskirkju

Margrét Guðjónsdóttir, 14/12 2011

Guðþjónusta sunnudaginn 11.desember

Barn borið til skírnar.  Messuþjónar lesa lestra.  Erla Dóra Vogler syngur einsöng.  Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Kristínar og Gísla.  Kaffi og djús í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.

Sigrún Óskarsdóttir, 11/12 2011

Jólatónleikar Graduale Nobili

Sunnudagskvöldið 11. desember nk.kl 22.00  mun Graduale Nobili  halda árlega jólatónleika sína, þar sem flutt verða verkin Dancing Day eftir John Rutter og Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten. Auk þessara verka flytjum við nokkrar íslenskar jólaperlur á borð við Hátíð fer að höndum ein, Nóttin var sú ágæt ein, og Jólasöng. Stjórnandi er Jón Stefánsson og Elísabet Waage leikur á hörpu. Sjá nánar Listafélag Langholtskirkju

Margrét Guðjónsdóttir, 7/12 2011

Messa og barnastarf

sunnudaginn 4. desember sem er annar sunnudagur í aðventu syngur Kór Vogaskóla undir stjórn Ágústu Jónsdóttur.  Ljós aðventukransins verða tendruð.  Börnin hefja sína guðsþjónustu í kirkjunni en halda svo í sunnudagaskóla hjá Kristínu og Gísla.  Kaffi og djús í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.

Sigrún Óskarsdóttir, 30/11 2011

Aðventukvöld 1. sunnudag í aðventu kl. 20

Við heilsum aðventunni í tali og tónum í Langholtskirkju á sunnudagskvöld 27.. nóvember kl. 20.  Formaður sóknarnefndar Kristín Þóra Harðardóttir flytur ávarp.  Kórskólin sýnir Lúsíuleik undir stjórn Þóru Björnsdóttur.  Gunnar Hersveinn flytur hátíðaræðu.  Kór Langholtskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar. Sálmar aðventunnar sungnir í almennum söng.  Sóknarnefnd býður upp á heitt kakó og piparkökur að stundinni lokinni.  Fjölmennum og upplifum aðventustemninguna saman, verið hjartanlega velkomin!

Sigrún Óskarsdóttir, 23/11 2011

Gradualekórinn syngur í guðsþjónustu á sunnudag kl.11

Guðsþjónusta kl.11 sunnudaginn 27. nóvember.  Lítill drengur borinn til skírnar.  Við byrjum saman í kirkjunni en að skírninni lokinni er börnunum boðið í sunnudagaskóla hjá Kristínu og Gísla.  Gradualekórinn syngur og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Jóns Stefánssonar organista.  Prestur sr. Sigrún Óskarsdóttir.  Kaffi og djús að guðsþjónustu lokinni.

Sigrún Óskarsdóttir, 23/11 2011

Laufabrauð á laugardegi

Á morgun, laugardaginn 19. nóvember býður kvenfélagið til laufabrauðsgerðar í safnaðarheimilinu kl. 10.30.  Þið mætið með bretti og skurðarhnífa og kökurnar verða seldar á staðnum.  Þið eruð hjartanlega velkomin!

Sigrún Óskarsdóttir, 18/11 2011

Tónleikar Kórs Langholtskirkju

Hinn 20. nóvember kl. 20 heldur Kór Langholtskirkju tónleika á messudegi heilagrar Sesselju. Sjá nánar Listafélag Langholtskirkju

Margrét Guðjónsdóttir, 17/11 2011

Fjölskylduguðsþjónusta á sunnudag 20.nóv.- Krúttakórinn syngur

Við ætlum að eiga saman góða stund í kirkjunni okkar á sunnudag kl. 11. Krúttakórinn syngur, ritningarlestrar, sögur og bæn. Mömmur, pabbar, ömmur, afar, frændur og frænkur, eigum saman gott samfélag með börnunum. Kaffi, djús og spjall að stundinni lokinni í safnaðarheimilinu. Sjáumst á sunnudag!

Sigrún Óskarsdóttir, 15/11 2011

Fermingarfræðsla sunnudagskvöld kl. 19.30

Börnin mæti með Nýja testamentið.

Jón Helgi Þórarinsson, 9/11 2011

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Þriðjudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.

Dagskrá ...