Langholtskirkja

 

Orgeltónleikar sunnudaginn 11. mars kl. 20.00

Orgeltónleikar hjá Listafélagi Langholtskirkju sunnudaginn 11. mars kl. 20.00.  Guðmundur Sigurðsson organisti í Hafnarfjarðarkirkju leikur á orgel kirkjunnar.  Sjá nánar Listafélag Langholtskirkju

Margrét Guðjónsdóttir, 8/3 2012

Norræn guðsþjónusta 11. mars kl. 11.00

Norræn guðsþjónusta og barnastarf verður í Langholtskirkju sunnudaginn 11. mars kl. 11. Sálmar og þjóðlög frá Norðurlöndunum verða sungin. Konur á samkirkjulegum norrænum kvennafundi flytja ritningarlestra og ljóð.  Sönghópurinn Góðir grannar syngja undir stjórn Þuríðar Vilhjálmsdóttur.  Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Ingunni Huld og Aroni.  Prestur  sr. Sigrún Óskarsdóttir, organisti Judith Þorbergsson. Kaffisopi og djús eftir stundina.

Margrét Guðjónsdóttir, 8/3 2012

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í Langholtskirkju 10. mars n.k. kl. 14.00. Helgina 9.-10.mars nk. mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps leggja land undir fót og flytja fólki sunnan heiða söng- og  leikverkefnið  “ Ég hef lifað mér til gamans”.  Dagskráin  byggist á lífshlaupi Björns Pálssonar, stórbónda og alþingismanns á Ytri Löngumýri, en Björn var litríkur persónuleiki og þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Textahöfundur  er Jóhanna  Halldórsdóttir, Brandsstöðum í Blöndudal. Sjá Tónleikar/Listviðburðir

Margrét Guðjónsdóttir, 6/3 2012

Afmælisfundur Kvenfélagsins þriðjudag kl. 20

Afmælisfundur verður haldinn þriðjudaginn 6. mars kl. 20.  Góðar veitingar og skemmtiatriði.

Það er mikið framundan hjá kvenfélaginu:

Það er glæsileg dagskrá hjá Tónlistarhópnum mánudaginn 12.mars en þá mun Halldór Haraldsson píanóleikari koma í heimsókn og fjalla um Franz Liszt í máli og tónum.

Allir eru velkomnir á þessa skemmtilegu dagskrá og aðgangur er ókeypis.

Við eigum von á nýjum spennandi matseðli fyrir fundinn hjá Matgæðngunum þann 22.mars.

Leshópurinn er að lesa bókna Selkonan sem Sólveig Eggertz las svo eftirminnilega uppúr á jólafundinum.

Prónakaffið og Skrapphópurinn eru á sínum stað og morgun-gönguhópurinn byrjar aftur þann 14.mars.

Sigrún Óskarsdóttir, 4/3 2012

Árni Bergmann - predikunin

Predikun Árna Bergmanns sem hann flutti í messu 26. febrúar s.l. má finna hér. Sjá Safnaðarstarf  - trúarlíf

Margrét Guðjónsdóttir, 2/3 2012

Æskulýðsdagurinn í Langholtskirkju á sunnudag kl. 11

Fyrsti sunnudagur í mars er æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar.  Við ætlum að hafa fjölskylduguðsþjónustu kl. 11.  Kór Vogaskóla syngur undir stjórn Ágústu Jónsdóttur.  Prestur, organisti og sunnudagaskólakennarar, þau Sigrún, Jón, Ingunn Huld og Aron leiða stundina.  Börn á öllum aldri velkomin í Langholtskirkju á sunnudag.  Messuþjónar bjóða upp á kaffi og djús að stundinni lokinni.

Sigrún Óskarsdóttir, 1/3 2012

Afmælisár Langholtssafnaðar

Langholtssöfnuður fagnar 60 ára afmæli á þessu ári.  Af því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag með ýmsum uppákomum.  Við verðum með fyrsta viðburðinn í messu á sunnudaginn kemur, 26. febrúar kl. 11.  Þá mun Árni Bergmann rithöfundur prédika.  Árni hefur búið um langt skeið í söfnuðinum.  Hann er fyrir löngu kunnur fyrir skif sín bæði sem blaðamaður og rithöfundur.  Prédikun er glíma við texta Biblíunnar og tilraun til að túlka og miðla til samtímans.  Ein bóka Árna Bergmann sem hlaut veðskuldaða athygli heitir Glíman við Guð.

Það eru fleiri að halda upp á afmæli þetta árið.  Heyrnarhjálp sem er til húsa hér í söfnuðinum fagnar 75 ára afmæli.  Ákveðið hefur verið að fara í spennandi samstarf sem felst í því að rittúlka messurnar sem haldnar eru í tilefni afmælisins.  Ritunin birtist á stórum skjá sem allir geta notið góðs af sem vilja.

Þetta er í fyrsta skipti sem þetta er gert á Íslandi svo vitað sé og vonandi verður þessari nýjung vel tekið.

Framundan er kvennamessa 18. mars þar sem konur sjá um alla þjónustuna og karlamessa 25. mars þar sem karlar sjá um þjónustuna.  Messurnar verða rittúlkaðar.

Fylgist með spennandi viðburðum, þið eruð hjartanlega velkomin.

Sigrún Óskarsdóttir, 21/2 2012

Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 19. febrúar kl. 11

Messa og sunnudagaskóli.  Við hefjum stundina saman í kirkjunni.  Eftir ritningarlestra sem messuþjónar sjá um fara börnin í safnaðarheimilið með Ingunni og Aroni.  Dagbjört Andrésdóttir syngur einsöng.  Organisti Jón Stefánsson.  Prestur Sigrún Óskarsdóttir.  Messuþjónar bjóða upp á kaffi og djús að helgihaldi loknu.  Verið hjartanlega velkomin í Langholtskirkju.

Sigrún Óskarsdóttir, 18/2 2012

Gradualekór Langholtskirkju, tónleikar 19. febrúar kl. 20.00

Gradualekór Langholtskirkju heldur tónleika sunnudaginn 19. Febrúar kl. 20. Á efnisskránni verða m. a. tvær messur eftir Bob Chilcott Friðarmessa (Peace mass) og Litla jazzmessan (A Little Jazz Mass). Sú fyrri er við orgelundirleik en seinni með píanói. Undirleikari er Tómas Guðni Eggertsson en stjórnandi Jón Stefánsson. Sjá nánar Listafélag Langholtskirkju

Margrét Guðjónsdóttir, 13/2 2012

Aðalfundur kvenfélagsins

Þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20 verður aðalfundur hjá kvenfélaginu.  Góðar veitingar, hefðbundin aðalfundarstörf og skemmtiatriði. Velkomnar!

Sigrún Óskarsdóttir, 5/2 2012

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Þriðjudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.

Dagskrá ...