Tónleikar Kórskóla Langholtskirkju
verða fimmtudaginn 10. desember kl. 18. Allir velkomnir.
Jón Helgi Þórarinsson, 7/12 2009
verða fimmtudaginn 10. desember kl. 18. Allir velkomnir.
Jón Helgi Þórarinsson, 7/12 2009
verða þriðjudaginn 8. desember kl. 19. Allir velkomnir.
Jón Helgi Þórarinsson, 7/12 2009
Krúttakórinn, börn 4 - 6 ára, syngur við guðsþjónustu kl. 11. Börn sem fullorðnir eiga saman stund í kirkjunni í upphafi þar sem kveikt verður á aðventukertunum og sungið saman. Síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut, Steinunni og Aroni en hinir eldri eiga sína stund áfram í kirkjunni. Kaffisopi. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Tómas Guðni Eggertsson.
Tekið við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Jón Helgi Þórarinsson, 2/12 2009
Tekið er við framlögum til brýnna málefna við hverja messu í Langholtskirkju. Hefur það verið frá því í haust og verður áfram. Við messuna á sunnudag, 29. nóvember, söfnuðust kr. 31.733 sem renna til Hjáparstarfs kirkjunnar. Auk þess seldi fulltrúi Hjálparstarfsins í söfnuðinum Friðarkerti fyrir nokkur þúsund krónur.
Jón Helgi Þórarinsson, 30/11 2009
Sr Hjálmar Jónsson les úr nýútkominni bók sinni. Gradualekór Langholtskirkju syngur. Geir Ólafs syngur og leikur. Blómabúðin Dalía sýnir pakkaskreytingar. Jólasúkkulaði og meðlæti. Verið velkomin.
Jón Helgi Þórarinsson, 28/11 2009
Laugardaginn 28. nóvember frá kl. 13 - 16 getið þið komið í safnaðarheimili Langholtskirkju og skorið út laufabrauð. Taka þarf með bretti, hnífa eða járn til að skera út með.
Skráning og upplýsingar í síma 5201300 eða 6997762 (Helga) og 8960359 (Anna Þóra).
Jón Helgi Þórarinsson, 26/11 2009
Stundin er fyrir börn sem fullorðna. Kór Kórskólans syngur og ber inn kertaljós. Tendrað á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Sveinn Rúnar Hauksson íhuga gildi aðventunnar í fortíð og nútíð. Gradualekór Langholtskirkju syngur. Almennur söngur. Kaffisopi á eftir.
Jón Helgi Þórarinsson, 24/11 2009
29. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu, verður þess minnst við hátíðamessu kl. 11 að 50 ár eru síðan fyrsta guðsþjónustan var haldin í safnaðarheimili Langholtskirkju. Séra Árelíus Níelsson messaði þann dag fyrir hálfri öld í safnaðarheimilinu sem enn var í byggingu og Helgi Þorláksson, organisti og formaður sóknarnefndar lék á orgelharmonium. Barn var skírt.
Hátíðamessan á sunnudag hefst í Litla salnum þar sem þessi fyrsta guðsþjónusta fór fram. Þar verður sunginn sálmur. Síðan verður gengið fram í andyri þar sem söfnuðurinn minnist skírnarinnar. Þaðan verður haldið inn í stóra safnaðarsalinn sem var notaður fyrir guðsþjónustur 1961 - 1984, lesinn ritningarlestur og sunginn sálmur. Að lokum verður gengið inn í kirkjuna þar sem kveikt verður á fyrsta aðventukertinu.
Tekið verður við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Sóknarprestur þjónar ásamt séra Kristjáni Vali Ingólfssyni sem predikar. Jón Stefánsson leikur á harmoníum og orgel.
Í lok messunnar verður opnuð sýning á málverkum eftir Hörð Ágústson listmálara, Myndverk um mannsson.
Jón Helgi Þórarinsson, 23/11 2009
Prjónakaffi verður í safnaðarheimili Langholtskirkju mánudaginn 23. nóvember kl. 20. Allar prjónakonur eru velkomnar.
Að þessu sinni munu Spilavinir koma í heimsókn og kynna starf sitt.
Jón Helgi Þórarinsson, 22/11 2009
Fræðslan hefst kl. 19 og lýkur um kl. 21.30.
Jón Helgi Þórarinsson, 18/11 2009
Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups
Sjá MYNDIR úr starfinu
Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.
Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.
Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi ![]()