Ásdís BJörg Gestsdóttir, nemandi í Söngskólanum í Reykjavík, syngur. Prestur sr Arna Ýrr Sigurðardóttir. Organisti Jón Stefánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut, Steinunni og Aroni. Kaffisopi eftir messuna.
Jón Helgi Þórarinsson, 18/11 2009
Kór Langholtskirkju heldur tónleika í Langholtskirkju sunnudaginn 22. nóvember kl. 17. Á efnisskrá eru íslensk og norræn kirkjutónlist sem m.a. hefur verið samin fyrir Kór Langholtskirkju. Frumflutt verður nýtt verk eftir Þóru Marteinsdóttur.
Einsöngvarvar eru úr röðum kórfélaga, Vala Sigríður Guðmundsdóttir Yates, María Vigdís Kjartansdóttir og Sæmundur Helgason. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Miðasala við innganginn.
Jón Helgi Þórarinsson, 17/11 2009
Listafélag Langholtskirkju býður upp á söngveislu í Langholtskirkju með Garðar Thór Cortes og Dísellu Lárusdóttur mánudagskvöldið 16. nóvember kl. 20. Meðleikari á píanó er Krystyna Cortes.
Á efnisskránni eru erlend og íslensk sönglög, aríur og dúettar.
Miðasala er á midi.is.
Jón Helgi Þórarinsson, 15/11 2009
Séra Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sóknarpresti. Kór Kórskólans syngur undir stjórn Þóru Björnsdóttur. Organisti Jón Stefánsson.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut, Steinunni og Aroni. Kaffisopi á eftir.
Jón Helgi Þórarinsson, 13/11 2009
Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 17.30 - 20 munu fermingarbörn ganga í hús í Langholtshverfi og safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Börnin verða með merkta og innsiglaða söfnunarbauka og blað með upplýsingum um söfnunina. Söfnunin er hluti af söfnun fermingarbarna víða um land.
Því fé sem safnast verður varið til að kosta byggingu vatnsbrunna í Malaví og Mósambik. Einn brunnur gjörbreytir lífi amk eitt þúsund manns, og ekki eru það síst aðstæður kvenna og barna sem breytast.
Sr Arna Ýrr Sigurðardóttir hefur umsjón með söfnuninni og sími hennar er 6962188.
Jón Helgi Þórarinsson, 8/11 2009
Bryndís Baldvinsdóttir kynnir Volare húð- og hárvörur. Allir velkomnir.
Jón Helgi Þórarinsson, 8/11 2009
Árlegur basar Kvenfélags Langholtssóknar verður haldinn laugardaginn 7. nóvember kl. 14. Á boðstólum verða kökur og handverk. Tekið er ámóti munum föstudaginn 6 nóv. kl. 18 - 20 og á laugardaginn kl. 10 - 12.
Basarinn hefur verið afar vel sóttur og skemmtilegur og eru sóknarbörn og velunnarar hvattir til að koma og styðja við mikilvægt starf Kvenfélagsins.
Jón Helgi Þórarinsson, 5/11 2009
Haraldur Jóhannsson, læknir og formaður Kristniboðssambandsins, predikar. Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, lýsir blessun, og vígslubiskupar séra Sigurður Sigurðarson og séra Jón A Baldvinsson, þjóna fyrir altari ásamt sóknarpresti séra Jóni Helga Þórarinssyni, séra Kristjáni Vali Ingólfssyni og séra Örnu Grétarsdóttur.
Gradualekór Langholtskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánsson, m.a. hluta úr Jassmessu og nýjan sálm frá Suður Ameríku. Agnar Már Magnússon leikur á píanó.
Tekið verður við framlögum til kristniboðsins.
Kirkjuþingsfulltrúar lesa ritningarlestra og bænir.
Eftir messuna verður opnuð sýning á ljósmyndum í tilefni af 80 ára afmælis Sambands íslenskra kristniboðsfélaga.
Messunni verður útvarpað.
Jón Helgi Þórarinsson, 3/11 2009
Ólafur Håkanson læknir verður með áhugaverðan og skemmtilegan fyrirlestur á opnum fundi Kvenfélags Langholtssóknar þriðjudaginn 3. nóvember kl. 20.
Karlar jafnt sem konur velkomin.
Jón Helgi Þórarinsson, 28/10 2009
Sunnudaginn 1.nóvember er hátíðamessa kl. 11. Allra heilagra messa, látinna minnst. Graduale Nobili syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar. Sr Jón Helgi Þórarinsson messar.
Tekið er við framlögum í minningarsjóð Guðlaugar Bjargar Pálsdóttur, en sjóðurinn hefur í mörg ár kostað söng við messugjörð í Langholtskirkju þennan sunnudag og stutt efnilega söngvara til náms.
Barmastarfið hefst í kirkjunni á sama tíma en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut, Steinunni og Aroni.
Kaffisopi.
Jón Helgi Þórarinsson, 28/10 2009