Langholtskirkja

 

Fermingarfræðsla, ferðalag og fundur með foreldrum

Fermingarfræðsla verður sunnudagskvöldið 1. nóvember kl. 19.

Foreldrar eru beðnir um að koma til fundar sama kvöld kl. 20.30. Við fáum góðan gest í heimsókn. Börnin verða með foreldrum á þessum fundi, og honum lýkur fyrir kl. 21.30.

Ferðalag fermingarbarna í Skálholt verður mánudaginn 2. nóvember. Farið verður kl. 8.30. Sjá nánar hér á síðunni undir FERMINGAR.

Jón Helgi Þórarinsson, 27/10 2009

Messa og barnastarf

sunnudaginn 25. október kl. 11. Sumarið kvatt - fyrsti sunnudagur í vetri.
Graduale futuri syngur

Prestur sr Arna Ýrr Sigurðardóttir. Organisti Jón Stefánsson.

Tekið við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnðarheimilið með Rut, Steinunni og Aroni.
Kaffisopi eftir messuna.

Jón Helgi Þórarinsson, 20/10 2009

Prjónakaffi

mánudagkvöldið 26. október kl. 20 í safnaðarheimilinu. Inga Hrönn Guðmundsdóttir verður með kynningu á garni og veitir gagnlegar uppýsingar fyrir prjónakonur. Allar prjónakonur velkomnar.

Jón Helgi Þórarinsson, 20/10 2009

Guðbrandsmessa og barnastarf 18 október kl. 11

Opin æfing kl. 10 - allir velkomnir.

Séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, predikar. Sóknarprestur, sr Jón Helgi Þórarinsson og  sr Kristján Valur Ingólfsson þjóna fyrir altari. Jón Stefánsson, kantor, leiðir söng ásamt forsöngvurum.

Messan er byggð á messu Guðbrands biskups úr Grallaranum frá 1594 í tilefni þess að í áru 25 ár liðin frá því að Langholtskirkja, kirkja Guðbrands biskups, var vígð. Jón Stefánsson hefur tekið saman messuskrá með öllum messutextum og söng, og verður bæði sungið á íslensku og latínu.

Sýning á Guðbrandsbiblíu, Grallara Guðbrands, hebreskri biblíu i eigu Guðbrands og fleiri bókum verður frá kl. 10 - 13 í Guðbrandskapellu.

Barnastarf verður í safnaðarheimilinu kl. 11 - 12, með Rut og Aroni.

Jón Helgi Þórarinsson, 12/10 2009

Prjónakvöld

í safnaðarheimili Langholtskirkju mánudagskvöldið 12. október kl. 20. Allar prjónakonur velkomnar.

Jón Helgi Þórarinsson, 11/10 2009

Konur eru konum bestar

Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur

verður haldið í Safnaðarheimili Langholtskirkju fimmtudaginn 8. október og þriðjudaginn 13. október kl. 20 - 23. Umsjón hefur sr Arna Ýrr Sigurðardóttir, og veitir hún nánari upplýsingar í síma 6962188 og á arna.yrr.sigurdardottir@kirkjan.is. Verð fyrir námskeiði er kr. 1000.

Jón Helgi Þórarinsson, 8/10 2009

Messa og barnastarf

sunnudaginn 11. október kl. 11. Tekið við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson, Kór Langholtskirkju syngur. Messunni er útvarpað. Barnastarfið verður í safnaðarheimilinu allan tímann með Rut, Steinunni og Aroni. Kaffisopi.

Jón Helgi Þórarinsson, 8/10 2009

Fermingarfræðsla sunnudagskvöldið 11. október kl. 19 - 22

Fermingarbörnin eru beðin um að koma með kennslubókina með sér.

Jón Helgi Þórarinsson, 6/10 2009

Nanna Rögnvaldar verður sérstakur gestur á kvenfélagsfundi

þriðjudaginn 6. október kl. 20. Nanna sýnir hvernig má matreiða holla og ódýran mat og kynnir einnig matreiðslubók sína. Kvöldhressingin er úr bókinni hennar. Allir velkomnir.

Jón Helgi Þórarinsson, 3/10 2009

Aðalfundur Listafélags Langholtskirkju

verður haldinn mánudagskvöldið 5. október kl. 20 í Safnaðarheimili Langholtskirkju. Venjuleg aðalfundarstörf. Verið velkomin.

Jón Helgi Þórarinsson, 3/10 2009

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Þriðjudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.

Dagskrá ...