Langholtskirkja

 

Messa og barnastarf sunnudaginn 4 október kl. 11

Safnað verður fyrir innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar.

Sænskur kór syngur í messunni og syngur einnig nokkur lög á eftir.
Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið.

Jón Helgi Þórarinsson, 30/9 2009

Foreldra- og ungbarnamorgnar

Opið hús fyrir foreldra ungra barna og verðandi mæður er alla þriðjudagsmorgna kl. 10 - 12. Umsjón hefur Lóa Maja Stefánsdóttir, móðir og sjúkraliði. Auk þess að spjalla saman er stefnt að því að þann 29. september verði eitthvað gott með kaffisopanum.

Jón Helgi Þórarinsson, 28/9 2009

Messa og barnastarf

sunnudaginn 27. september kl. 11. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðrheimilið með Rut, Steinunni og Aroni. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir messa. Organisti er Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir stundina.

Jón Helgi Þórarinsson, 24/9 2009

Fermingarstarf sunnudaginn 27. sept, kl. 19 - 22

Fermingarsamvera verður næsta sunnudag, 27. september kl. 19 - 22. M.a. verður Biblían skoðuð og eru fermingarbörnin beðin um að koma með Biblíu að heiman til að fletta og skoða. Þau börn sem ekki hafa enn skráð sig í fermingarstarfið þurfa að gera það fyrir helgi.

Jón Helgi Þórarinsson, 22/9 2009

Starf eldri borgara alla miðvikudaga

Kl. 12.10 er hádegisbænagjörð með orgelleik. KL. 12.30 er léttur hádegisverður (kr. 500). Kl. 13 - 16 er opið hús fyrir eldri borgara. Söngur, spilamennska, föndur, spjall, kaffisopi,

Jón Helgi Þórarinsson, 22/9 2009

Orgelleikur í hádeginu

í tilefni þess að 10 ár eru síðan Noack orgelið kom í Langholtskirkju eru stuttir orgeltónleikar í hádeginu virka daga 21. - 25. sept, kl. 12.15. Nemendur í Tónskóla Þjóðkirkjunnar leika. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Jón Helgi Þórarinsson, 22/9 2009

Orgeltónleikar sunnudagskvöld og í hádegi alla vikuna

Sunnudagskvöldið 20. september kl. 20 heldur Björn Steinar Sólbergsson tónleika á Noak orgelið í Langholtskirkju í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá því að orgelið kom í kirkjuna.
Nemendur Tónskóla Þjóðkirkjunnar leika á orgelið í hádeginu vikuna 21. - 25. september kl. 12.15. Aðgangur er ókeypis á hádegistónleikana.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 15/9 2009

25 ára vígsluafmæli Langholtskirkju

sunnudaginn 20. september kl. 11. 10 ár liðin frá því nýtt orgel og steindir gluggar voru helguð. Stóri fjölskyldudagurinn. Fjölbreytt dagskrá fyrir börn sem fullorðna. Börnin taka þátt í fyrri hluta messunnar og þar mun Krúttakórinn syngja og einnig Svavar Knútur trúbador. Síðan fara börnin í safnaðarheimilið þar sem verður margvísleg dagskrá. Leiktæki eru úti við. Við hátíðamessuna í kirkjunni predikar sr Þorvaldur Karl Helgason og Kór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju syngja.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 14/9 2009

Hádegisbænir og starf eldri borgara

Kl. 12.10 verður bænagjörð í kirkjunni með orgelleik og sálmasöng. Kl. 12.30 er boðið upp á léttan hádegisverð (kr. 500). og Kl. 13 - 16 er opið hús fyrir eldri borgara, tekið í spil, sungið, föndrað og spjallað.

Jón Helgi Þórarinsson, 14/9 2009

Ferð Kvenfélagsins laugardag 19 september

Hægt er að skrá sig til fimmtudags 17. sept. í síma 5201300 eða annatora (hja) langholtskirkja.is. Farið verður á Safnasvæðið á Akranesi, í Hallgrímskirkju í Saurbæ og að lokum snæddur kvöldverður á Bjarteyjarsandi.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 14/9 2009

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Þriðjudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.

Dagskrá ...