Langholtskirkja

 

Messa og barnastarf sunnudaginn 23. október kl. 11

Sönghópurinn Góðir grannar syngur.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Kristínu og Aroni.
Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson.
Kaffisopi og djús eftir messuna.

Jón Helgi Þórarinsson, 20/10 2011

Orgeltónleikar sunnudagskvöldið 23. okt kl. 20.

Ágúst Ingi Ágústsson leikur Noak orgel Langholtskirkju á vegum Listafélags Langholtskirkju sunnudaginn 23. október kl. 20.

Á efnisskránni eru barokverk eftir Nicolaus Bruhns, Georg Böhm, J S Bach, Georg Muffat, Johann Ulrich Steigleder, Nicolas de Grigny og Dieterich Buxtehude.

Tónleikarnir eru um klukkstundar langir.

Aðgangseyrir er kr. 2.000 / 1.500 fyrir félaga í Listafélaginu. Ókeypis fyrir börn

Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 18/10 2011

Konur í Langholti - Miðvikudaginn 19. október er göngudagur

Róleg ganga kl. 10.30
Röskleg ganga kl. 19.30.

Allar konur velkomnar!

Jón Helgi Þórarinsson, 17/10 2011

Konur í Langholti - fjölbreytt dagskrá kvenfélagsins

Þriðjudagskvöldið 18. október kl. 20 hittist skrapphópurinn í safnaðarheimili Langholtskirkju. Byrjendur fá leiðsögn til að gera lítið albúm á auðveldan hátt .. Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 17/10 2011

Mömmumorgnar alla þriðjudaga kl. 10 - 12

Opið hús fyrir mæður ungar barna og verðandi mæður.
Heitt á könnunni. Verið velkomin.

Jón Helgi Þórarinsson, 17/10 2011

Fermingarfræðsla sunnudaginn 16. október kl. 19.30

Æskilegt er að börnin komi með Nýja testamentið sitt með sér.

Jón Helgi Þórarinsson, 11/10 2011

Messa og barnastarf sunnudaginn 16. október kl. 11

Elfa Dröfn Stefánsdóttir nemendi í Söngskólanum í Reykjavík syngur einsöng.
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Kristínu og Aroni.
Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson.

Jón Helgi Þórarinsson, 11/10 2011

Útgáfutónleikar Graduale Nobili laugardaginn 15. október kl. 16

Kynntur verður nýr diskur, sem gefinn er út í tilefni 10 ára afmælis kórsins. Diskurinn hefur að geyma fjölbreytta kórtónlist, bæði úrval af fyrri tveimur diskum kórsins sem og nýjar upptökur. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson.
Aðgangur er ókeypis.

Jón Helgi Þórarinsson, 11/10 2011

Hádegisbænagjörð og starf eldri borgara alla miðvikudaga

Kl. 12.10 hefst bænagjörð með orgelleik og sálmasöng
Kl. 12.30 er boðið upp á létta máltíð (kr. 500)
Kl. 13 - 16 er opið hús fyrir eldri borgara; tekið í spil, spjallað, föndrað, kaffisopi

Jón Helgi Þórarinsson, 11/10 2011

Prjónakaffi mánudaginn 10. otkóber kl. 20

Hulda Hákonardóttir kynnir nýja Prjónablaðið.
Kaffisopi.
Allar prjónakonur velkomnar.

Jón Helgi Þórarinsson, 4/10 2011

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Fimmtudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15.
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.

Dagskrá ...