Langholtskirkja

 

Fyrra sumarnámskeiðið fellur niður

Vegna ónógrar þátttöku fellur niður fyrra sumarnámskeiðið sem er auglýst hér fyrir neðan. Mun betri skráning er á námskeiðið í ágúst og er stefnt að því að halda það. Enn er hægt að skrá sig á það námskeið.

Jón Helgi Þórarinsson, 16/6 2009

Sumarnámskeið fyrir 11 - 13 ára krakka

KOMDU AÐ LEIKA heita tvö sumarnámskeið sem Langholtskirkja og Áskirkja bjóða upp á í sumar. Fyrra námskeiðið er frá 15 - 26 júní og hið síðara frá 5. - 14. ágúst. Leiklist, bardagalist, sirkuslistir, hljóðfæragerð móta dagskrána sem er frá kl. 10 - 14 á daginn og er matur í hádeginu. Kennarar verða Arnoddur Magnús Danks og Aníta Ómarsdóttir sem bæði eru sérmenntuð á þessum sviðum og hafa uppeldismenntun. Sjá nánar hér um skráningu og þátttökugjöld.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 9/6 2009

Messa sunnudaginn 14 júní kl. 11

Félagar úr Kammerkór Langholtskirkju syngja ættjarðarlög og sálma. Sr Arna Ýrr Sigurðardóttir messar. Kaffisopi.

Jón Helgi Þórarinsson, 9/6 2009

Gradualekór Langholtskirkju vann gull og silfur í kórakeppni

6. júní voru kunngerð úrslit í keppni sem heitir Festival of songs og bærinn heitir Olomouc og er í Tékklandi. Er þetta í 37 sinn sem kórakeppni af þessu tagi er haldin í Olomouc
Gradualekór Langholtskirkju vann gullverðlaun með 96 stig af 100 í flokki kirkjutónlistar og silfur með 88 stig af 100 í flokki æskukóra.
Í keppninni tóku þátt 117 kórar frá 12 löndum, yfir 3500 söngvarar.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 7/6 2009

Messa sjómannadag kl. 11

Látinna sjómanna minnst. Finnski kórinn Canzonetta Nova syngur. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Kaffisopi eftir messuna.

Jón Helgi Þórarinsson, 3/6 2009

Tónleikar sunnudagskvöld kl 20

Finnski kórinn Canzonett Nova flytur Petit messe solennelle í Langholtskirkju 7. júní kl. 20. Einsöngvarar eru Hulda Björk Garðarsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Garðar Thor Cortes og Davíð Ólafsson. Hljóðfæraleikur.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 2/6 2009

Hátíðamessa og ferming hvítaunnudag kl. 11

Hvítasunnudag, 31. maí kl. 11, verður hátíðamessa kl. 11. Sr Jón Helgi Þórarinsson og sr Arna Ýrr Sigurðardóttir þjóna. Kór Langholtskirkju syngur. Fermd verða 10 börn. Söfnuðurinn er hvattur til að fjölmenna til messunnar.

Jón Helgi Þórarinsson, 26/5 2009

Tónleikar Gradualekórs Langholtskirkju

fimmtudaginn 28 maí kl. 20.
Flutt verða lög sem kórinn mun syngja í kórakeppni í Tékklandi nú í byrjun júní.
Aðgangseyrir rennur í ferðasjóð. Stjórnandi Jón Stefánsson.

Jón Helgi Þórarinsson, 25/5 2009

Aðalsafnaðarfundur Langholtssafnaðar

verður haldinn mánudaginn 25 maí kl. 20 í safnaðarheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarbörn eru hvött til að mæta og ræða um málefni safnaðarins.

Jón Helgi Þórarinsson, 24/5 2009

Messa sunnudaginn 24 maí kl. 11

Vala Sigríður Guðmundsdóttir Yates syngur einsöng. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir messuna.

Jón Helgi Þórarinsson, 24/5 2009

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Þriðjudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.

Dagskrá ...