Langholtskirkja

 

Guðsþjónusta uppstigningardag kl. 14

Athugið tímann!! Sr Tómas Guðmundsson fyrrum prófastur predikar. Andri Björn Róbertsson syngur einsöng. Sr Jón Helgi Þórarinsson þjónar fyrir altari og Jón Stefánsson leikur á orgelið. Eftir stundina er öllum boðið að þiggja kaffiveitingar og skoða handavinnusýningu úr starfi eldri borgara á liðnum vetri.

Jón Helgi Þórarinsson, 18/5 2009

Messa 17. maí - sænskur kór syngur

Sænski kórinn AstraZeneca syngur við messu í Langholtskirkju sunnudaginn 17 maí kl. 11. Kórinn heldur einnig stutta tónleika kl. 12, þ.e. í beinu framhaldi af messunni. Allir eru velkomnir. Prestur sr Arna Ýr Sigurðardóttir. Organisti Jón Stefánsson.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 12/5 2009

Frumflutningur á kórverki eftir Vivaldi 17 maí kl. 20

Kór Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar flytur tvö verk eftir Vivaldi á tónleikum sunnudagskvöldið 17 maí kl. 20 ásamt kammersveit og einsöngvurum úr röðum kórfélaga. Fyrra verkið er hið þekkta verk GLORIA en síðar verkið fannst 2005 og heitir Dixit Dominus. Miðasala er á midi.is.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 11/5 2009

Orgeltónleikar sunnudagskvöldið 10. maí kl. 20

Guðný Einarsdóttir, organisti, kemur fram ásamt félögum úr Voces Thules sem syngja. Tónleikarnir eru á vegum Listafélags Langholtskirkju.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 7/5 2009

Messa sunnudaginn 10. maí kl. 11

Arnheiður Eiríksdóttir og Kristín Einarsdóttir Mäntylä syngja dúett og aríur úr Gloriu e Vivaldi. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi eftir messu. Barnastarfinu er lokið á þessu vori.

Jón Helgi Þórarinsson, 7/5 2009

Myndir úr starfinu

Skoða má myndir úr starfinu sem og ýmsum messum og öðrum viðburðum (s.s. fermingum og prjónakvöldum) með því að smella á SJÁ MYNDIR hér til hliðar.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 26/4 2009

Foreldra og ungbarnamorgnar á þriðjudögum

Alla þriðjudaga kl. 10 - 12 er opið hús fyrir foreldra ungra barna og verðandi mæður. Hressing. Lóa Maja sér um samveruna. Verið velkomin.

Jón Helgi Þórarinsson, 14/4 2009

Hádegisbæn og starf eldri borgara

Á miðvikudögum kl. 12.10 er bænagjörð í Langholtskirkju með sálmasöng og orgelleik.
Kl. 12.30 er boðið upp á léttan hádegisverð (kr. 500).
Starf eldri borgara hefst kl. 13 og lýkur kl. 16. Þar er sungið, tekið í spil, föndrað, spjallað saman auk þess sem kaffisopinn er á sínum stað. Verið velkomin.

Jón Helgi Þórarinsson, 14/4 2009

Ég bíð uns birtir yfir

Listaflétta Kórs Langholtskirkju
föstudaginn langa, 10. apríl kl. 17 í Langholtskirkju.
Sýnd verða málverk eftir Erlu Þórarinsdóttur.
Njörður P. Njarðvík les ljóð tengd föstunni.
Meginverk þessara tónleika er Quatre Motets pour le temps de Pénitence eftir Poulenc.
Á tónleikunum verða einnig fluttar mótettur eftir tónskáld endurreisnartímans.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 5/4 2009

Fjölbreytt og áhrifamikið helgihald um bænadaga og páska

Messa skírdagskvöld kl. 20. Samfélagið um borð Drottins. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Í lok stundarinnar er tekið af altarinu og kirkjan búin undir föstudaginn langa.

Guðsþjónusta föstudaginn langa kl. 11. Sungin Litanía, lesið úr Píslarsögunni og Passíusálmunum. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju syngur.
Kl. 12 – 16.30. Opið hús. Grétar Einarsson les alla passíusálma sr Hallgríms Péturssonar. Listaflétta kl. 17. Tónleikar Kórs Langholtskirkju, ljóðalestur og myndlistarsýning.

Páskanæturmessa – laugardagskvöld, aðfaranótt páska, kl. 23.00.
Messan hefst í myrkvaðri kirkjunni. Páskaljósið borið inn undir lofsöngvum. Skírnarminning og söfnuðurinn tendrar á kertum. Séra Jón Helgi Þórarinsson og sr Arna Ýrr Sigurðardóttir leiða messuna. Organisti Jón Stefánsson.

Hátíðamessa páskadagsmorgunn kl. 8. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngur einsöng. Kór Langholtskirkju syngur. Heitt súkkulaði og þeir sem geta komi með brauð og leggi á borðið.
Barnastund í Húsdýragarðinum páskadag kl. 11 í umsjón presta í Laugardalnum.

Fermingarmessa 2. páskadag kl. 11. Séra Jón Helgi Þórarinsson og sr Arna Ýrr Sigurðardóttir messa. Organisti Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju syngur.

Jón Helgi Þórarinsson, 5/4 2009

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Þriðjudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.

Dagskrá ...