Langholtskirkja

 

Fjölskylduguðsþjónusta 4 janúar kl. 11

Jólin kvödd. Prestur sr Arna Ýrr Sigurðardóttir. Organisti Jón Stefánsson.

Jón Helgi Þórarinsson, 8/1 2009

Hátíðamessa nýársdag kl. 14

Andri Snær Magnason, rithöfundur, flytur ræðu. Eiríkur Hreinn Helgason syngur einsöng. Prestur sr Arna Ýrr Sigurðardóttir. Kór Langholtskirkju syngur. Organisti Jón Stefánsson.

Jón Helgi Þórarinsson, 26/12 2008

Sóknarprestur í námsleyfi

Sr Jón Helgi Þórarinsson verður í þriggja mánaða námsleyfi frá 1. janúar - 31. mars 2009. Sr Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar Langholtsprestakalli á meðan. Sími sr Örnu er 6962188.

Jón Helgi Þórarinsson, 26/12 2008

Aftansöngur gamlársdag kl. 17 - kl. 5 síðdegis

Athugið tímann! Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón stefánsson. Kór Langholtskirkju syngur.
Ekki er messað í Langholtskirkju sunnudaginn 28. desember.

Jón Helgi Þórarinsson, 26/12 2008

Ljós á aðventu

Sýning á 16 gólfkertastjökum var opnuð við hátíðamessu fyrsta sunnudag í aðventu. Félagar í Leirlistafélagi Íslands standa að sýningunni. Tilgangur sýningarinnar er að vekja eftirtekt á fjölbreytileika og sköpunargleði, og veita birtu og yl í umhverfið á þessum dimma árstíma.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 27/11 2008

Fundur með foreldrum fermingarbarna

miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20. Rætt verður um fermingarstarfið. Sérstakur gestur fundarins er sr Kristján Valur Ingólfsson,lektor, sem mun fjalla um altarisgönguna og þá sérstaklega um altarisgöngur fermingarbarna.

Jón Helgi Þórarinsson, 24/11 2008

Helgistund og starf eldri borgara

alla miðvikudaga. Kl. 12.10 hefst bænagjörð í kirkjunni með orgelleik og sálmasöng, hugvekju og bæn. Kl. 12.30 er léttur hádegisverður. Opið hús fyrir eldri borgara er frá kl. 13 - 16 með söng, spilamennsku, föndri, spjalli og kaffisopa.

Jón Helgi Þórarinsson, 24/11 2008

Opið hús fyrir foreldra ungra barna

alla þriðjudaga kl. 10 - 12. Verið velkomin. Umsjón hefur Lóa Maja Stefánsdóttir.

Jón Helgi Þórarinsson, 24/11 2008

Messa og barnastarf kl. 11

sunnudaginn 23.. nóvember. Síðasti sunnudagur kirkjuársins. Tekið við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar. Magnús Hallur Jónsson syngur einsöng. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í barnastarfið með Rut, Steinunni og Aroni. Kaffisopi eftir stundina.

Jón Helgi Þórarinsson, 20/11 2008

Fermingarfræðslu frestað!!

Þar sem úrslitakeppni SKREKKS fer fram í kvöld, þriðjudaginn 18. nóv, kl. 19 - 21, verður fermingarstarfinu sem vera átti í Langholtskirkju frestað um óákveðin tíma!
Því miður höfðum við prestarnir ekki vitneskju um þetta kvöld þegar dagskráin var gerð í haust. En þar sem 8 bekkur tekur þátt í þessari skemmtilegu og spennandi keppni er eðlilegt að þau fái tækifæri að sjá hana, en hún verður sýnd beint í sjónvarpi.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 18/11 2008

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Fimmtudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15.
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.

Dagskrá ...