Langholtskirkja

 

Æskulýðsmessa sunnudaginn 8. mars kl. 11

Fermingarbörn sýna leikþáttinn ,,Freisting Jesú” og sýnd verða myndverk sem þau hafa unnið í fermingarfræðslu. Kór Vogaskóla syngur undir stjórn Ágústu Jónsdóttur. Prestur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, organisti Jón Stefánsson. Allir velkomnir, molasopi eftir messu. Barnastarf í kirkju og safnaðarheimili á sama tíma.

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 5/3 2009

Tónleikar Kammerkórs Norðurlands

Sunnudaginn 1. mars kl. 17:00 verður Kammerkór Norðurlands með tónleika í Langholtskirkju. Tónleikarnir eru á vegum Listafélags Langholtskirkju. Á tónleikunum mun kórinn frumflytja verk eftir Báru Grímsdóttur auk þess að syngja verk m.a. eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson og Snorra Sigfús Birgisson. Stjórnandi kórsins er Guðmundur Óli Gunnarsson. Almennt verð á tónleikana er kr. 2.500 en fyrir félaga í Listafélaginu er það kr. 2.000.
Lesa áfram …

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 1/3 2009

Messa 1. mars kl. 11

Prestur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, organisti Jón Stefánsson. Kristín Sveinsdóttir og Sigrún Ósk Jóhannesdóttir syngja. Barnastarf í safnaðarheimilinu eftir sameiginlegt upphaf. Allir velkomnir, molasopi eftir messu. Ath. Messu með þátttöku fermingarbarna hefur verið frestað um viku, hún verður s.s. 8. mars.

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 26/2 2009

Afmælisfundur Kvenfélags Langholtssóknar

Afmælisfundur kvenfélagsins verður haldinn þriðjudagskvöldið 3. mars kl. 20:00. Gestir frá Kvenfélagi Bessastaðahrepps koma á fundinn. Kynning á vörum frá Rósa Design, Skólavörðustíg 10. Kaffiveitingar.

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 26/2 2009

Prjónakaffi kvenfélagsins

Næsta prjónakaffi verður mánudagskvöldið 2. mars kl. 20:00 í Safnaðarheimili Langholtskirkju. Allir sem hafa ánægju af hvers kyns handavinnu, eða góðu og skemmtilegu samfélagi eru velkomnir. Boðið er upp á kaffi og með því í boði kvenfélagsins.

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 26/2 2009

Æskulýðsmessan færist til um viku

Messa með þátttöku fermingarbarna sem átti að vera á æskulýðsdaginn 1. mars, færist til 8. mars. Næsti fermingarfræðslutími verður sunnudagskvöldið 1. mars kl. 19:30.

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 24/2 2009

Fermingarfræðslu frestað

Fermingarfræðslutíma sem átti að vera í kvöld, 24. febrúar, er frestað af óviðráðanlegum orsökum. Nýr tími verður tilkynntur við fyrsta tækifæri.

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 24/2 2009

Gradualekór Langholtskirkju flytur Håb eftir John Høybye

Gradualekór Langholtskirkju heldur tónleika í Langholtskirkju 22. febrúar n.k. kl. 20. Á efnisskránni er meðal annars verkið Håb (von) eftir danska tónskáldið John Høybye. Verkið er samið fyrir kór, einsöngvara, orgel, píanó, altsaxófón, bassa og slagverk. Það er í 8 köflum sem fjalla um síðustu daga Krists frá ýmsum sjónarhornum. Komið er við í Getsemanegarðinum, á Golgatahæðinni, konunum fylgt að gröfinni sem reynist tóm og upprisunni fagnað.

Einsöngvarar í verkinu eru kórfélagar sem komnir eru áleiðis í söngnámi, en yfir 2/3 kórfélaga stunda söngnám. Það eru þær Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Kristín Sveinsdóttir og Sigrún Ósk Jóhannesdóttir.

Lesa áfram …

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 19/2 2009

Messa sunnudaginn 22. febrúar

Prestur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Organisti Jón Stefánsson. Krúttakórinn syngur undir stjórn Þóru Björnsdóttur og Huldu Daggar Proppé.
Lesa áfram …

Arna Ýrr Sigurðardóttir, 19/2 2009

Ryleys drengjakórinn með tónleika í Langholtskirkju

Ryleys drengjakórinn frá Manchester heldur tónleika í Langholtskirkju laugardaginn 14. febrúar kl. 17:00. Gradualekór Langholtskirkju kemur einnig fram. Aðgangur er ókeypis.

Jón Helgi Þórarinsson, 11/2 2009

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Þriðjudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Mömmumorgnar - opið hús, kl. 10 - 12.
Kórskóli, Graduale futuri og Gradualekór Langholtskirkju kl. 17 - 19.
Fundir Kvenfélagsins fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20.

Dagskrá ...