Nýrri biblíuþýðingu fagnað. Dr Gunnlaugur A Jónsson, prófessor, predikar. Sr Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Organisti Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju syngur. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut, Steinunni og Aroni. Kaffisopi.
Jón Helgi Þórarinsson, 17/10 2007
Kammerkór Langholtskirkju syngur. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í barnastarfið með Rut og Steinunni. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson.
Jón Helgi Þórarinsson, 10/10 2007
Börn úr Vogaskóla mæta á þriðjudag kl. 15 og kl. 16 og börn úr Langholtsskóla á miðvikudag kl. 15 og 16. Fyrir tímann skal lesa kafla 28 og 29 í Bókin um Jesú. Sérstaklega verður farið yfir bænina Faðir vor. Sjá má myndir úr fermingarstarfinu með því að smella á MYNDIR hér til hliðar.
Jón Helgi Þórarinsson, 7/10 2007
Sigurbjörg Hjörleifsdóttir syngur einsöng og félagar í Kammerkór Langholtskirkju syngja. Skírn. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut og Steinunni. Kaffisopi eftir messuna. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson.
Jón Helgi Þórarinsson, 3/10 2007
Á þriðjudögum er opið hús kl. 10 - 12 fyrir foreldra ungra barna og verðandi mæður. Á miðvikudögum er opið hús kl. 13 - 16 fyrir eldri borgara. Kl. 12.10 er hádegisbænagjörð með orgelleik og kl. 12.30 er létt máltíð (kr.300).
Jón Helgi Þórarinsson, 25/9 2007
Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut og Steinunni. Prestur sr Arna Ýrr Sigurðardóttir. Organisti Jón Stefánsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju leiða söng. Kaffisopi.
Jón Helgi Þórarinsson, 25/9 2007
Um 400 manns - börn og fullorðnir - voru við messu í Langholtskirkju 23. sept. Allir kórar kirkjunnar sungu og einnig KK. Sr Kristján Valur Ingólfsson predikaði en prestar kirkjunnar þjónuðu og leikmenn lásu lestra og bænir. Borgarstjórinn heimsótti kirkjuna kl. 13. Sjá myndir hér til hliðar!
Lesa áfram …
Jón Helgi Þórarinsson, 23/9 2007
Allir 8 kórar Langholtskirkju syngja bæði saman og hver í sínu lagi. Sérstakir gestir verða Vilhjálmur borgarstjóri, KK sem syngur, leikarinn Halldór Gylfason sem spjallar við börnin, Ragnar Bjarnason og Þorgeir Ástvaldsson. Úti á lóð verða leiktæki fyrir börn og öllum er boðið upp á pylsur og aðra hressingu. Fjölbreytt dagskrá og allt starfið í Langholtskirkju verður kynnt.
Lesa áfram …
Jón Helgi Þórarinsson, 18/9 2007
Andri Björn Róbertsson syngur einsöng. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut og Steinunni. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson.
Jón Helgi Þórarinsson, 13/9 2007
hefst miðvikudaginn 12. september. Bænagjörð með orgelleik og sálmasöng er kl. 12.10. Léttur hádegisverður er kl. 12.30 (kr. 300) og opið hús fyrir eldri borgara er frá kl. 13 - 16, með söng, spilamennsku (bæði vist og bridds), föndri og kaffisopa. Verið velkomin.
Jón Helgi Þórarinsson, 10/9 2007