Langholtskirkja

 

Barnastarf í safnaðarheimilinu 15. apríl kl. 11

Rut, Steinunn og Aron sjá um skemmtilegt og fræðandi starf fyrir börn. Foreldrar, afar og ömmur og eldri systkini hvott til að koma með börnin í barnastarfið. Barnastarfinu lýkur 29. apríl!

Jón Helgi Þórarinsson, 11/4 2007

Fermingarmessa 15. apríl kl. 11

Fermd verða 26 börn. Nöfn þeirra má lesa hér undir Safnaðarstarf. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir og séra Jón Helgi Þórarinsson annast messuna og Jón Stefánsson stýrir Kór Langholtskirkju sem syngur.

Jón Helgi Þórarinsson, 11/4 2007

Fermingarmessa 2. páskadag, 9. apríl, kl. 11

Fermingarbörn: Aron Ingi Andrésson, Einar Örn Rósarsson, Heiðrún Inga Þrastardóttir, Kristján Einar Auðunsson, Sigvaldi Hjálmar Albertsson, Soffía Ummarin Kristinsdóttir.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 3/4 2007

Fjölbreytt og áhrifamikið helgihald um bænadaga og páska

Skírdagskvöld kl. 20; föstudaginn langa kl. 11; aðfaranótt páska kl. 23.00 og páskadagsmorgun kl. 8. Sjá nánar hér.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 3/4 2007

Listaflétta - tónleikar, ljóðalestur, dans og myndlist á föstudaginn langa kl. 20

„Ég bíð uns birtir yfir.“
Kór Langholtskirkju syngur föstutónlist og einnig verða flutt ljóð sem tilheyra þessum degi, sýnd málverk og hreyfing og dans tjá inntak orgelverka og kórtónlistar.
Sjá nánar undir TÓNLEIKAR.

Jón Helgi Þórarinsson, 27/3 2007

Fjölskylduguðsþjónusta pálmasunnudag kl. 11. Fermingarmessa kl. 13.30

Við guðsþjónustuna kl. 11 munu börnin taka þátt í göngu um kirkjuna og veifa pálmagreinum eins og segir frá í guðspjalli dagsins. Barn verður skírt. Börn og fullorðnir verða saman í kirkjunni allan tímann og verða sálmar og útlegging texta við það miðað. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón stefánsson.

Lesa má nöfn þeirra barna sem fermast kl. 13.30 hér undir SAFNAÐARSTARF; fermingarstarf.

Jón Helgi Þórarinsson, 27/3 2007

Hátíðamessa og barnastarf 25 mars kl. 11

Boðundagur Maríu. Graduale futuri syngur. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir messar. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut. Steinunni og Aroni. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Harpa Harðardóttir stjórnar kórnum. Kaffisopi.

Jón Helgi Þórarinsson, 21/3 2007

Nöfn fermingarbarna og dagskrá fermingarstarfsins

fram yfir fermingar má finna hér undir SAFNAÐARSTARF / fermingarfræðsla.

Jón Helgi Þórarinsson, 19/3 2007

Fundur með foreldrum fermingarbarna þriðjudagskvöldið 20. mars kl. 20

Séra Kristján Valur Ingólfsson fjallar um altarisgönguna, inntak hennar og hví venja sé að fermingrbörn fari fyrst til altaris við fermingu. Einnig verður fjallað um fermingarstörfin næstu vikur, æfingar fyrir ferminguna og fleira.

Jón Helgi Þórarinsson, 18/3 2007

Gradualekór Langholtskirkju og Caput hópurinn

verða með tónleika í Langholtskirkju sunnudaginn 18. mars kl. 17.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 14/3 2007

Langholtskirkja
kirkja Guðbrands biskups


Sjá MYNDIR úr starfinu

Símaviðtalstímar
Sóknarprestur, séra Sigrún Óskarsdóttir (þjónar frá 1.11.2011 - 31.7.2012), er með viðtalstíma þriðjudaga - fimmtudaga kl. 10.30 - 12. Æskilegt er að panta tíma fyrir lengri viðtöl. Sími Langholtskirkju er 5201300 en farsími sóknarprests er 8631910.

Miðvikudagur

Skrifstofa kirkjunnar opin kl. 10 - 12 og kl. 13 - 15.
Viðtalstími sóknarprests kl. 10.30 - 12.
Hádegisbænagjörð með orgelleik og sálmasöng kl. 12.10 - 12.30
Léttur hádegisverður kl. 12.30 (kr. 500)
Starf eldri borgara kl. 13 - 16.
Krúttakórinn kl. 17 - 18.10.
Kór Langholtskirkju kl. 19.30

Dagskrá ...