Langholtskirkja

 

Lögreglukórinn syngur 1. maí – uppstigningardag – kl. 11

Guðsþjónusta verður í Langholtskirkju uppstigningardag, 1. maí, kl. 11. Snorri Magnússon, form Landsambands lögreglumanna flytur ræðu. Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sjúkrahúsprestur, og séra Hans Markús Hafsteinsson, héraðsprestur, þjóna. Lögreglukórinn syngur undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar. Organisti Jón Stefánsson. Boðið verður upp á kaffiveitingar eftir stundina. Handavinnusýning úr starfi eldri borgara. Eldri borgurum er sérstaklega boðið.

Jón Helgi Þórarinsson, 28/4 2008

Kvartett úr Listaháskólanum leikur við guðsþjónustu sunnudaginn 27. apríl

Graduale futuri syngur vor- og sumarsálma í guðsþjónustu 27. apríl kl. 11 undir stjórn Hörpu Harðardóttur. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið.
Síðari hluta guðsþjónustunnar fáum við að hlýða á 4 hljóðfæraleikara úr Listaháskólanum flytja tónverkið ‘Kvartett um endalok tímans’ eftir franska tónskáldið Olivier Messiaen. Biblíutextum þessa magnþrungna verks verður varpað á tjald.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 22/4 2008

Fermingarmessa sumardaginn fyrsta kl. 11

Séra Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, fermir 11 börn. Gradualekór Langholtskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar.

Jón Helgi Þórarinsson, 22/4 2008

Biskup er með hádegisbænagjörð og kynnir sér safnaðarstarfið

Miðvikudaginn 23. apríl heimsækir biskup Íslands Langholtssöfnuð. Dagskráin hefst með hádegisbænagjörð kl. 12.10. Síðan kynnir biskup sér starf eldri borgara og á fundi með sóknarpresti, sóknarnefnd og starfsfólki. Um kl. 17.30 munu börnin í Krúttakórnum syngja fyrir biskup og hann talar til þeirra.

Jón Helgi Þórarinsson, 22/4 2008

Kammerkór Langholtskirkju með tónleika 20. apríl kl. 20

ásamt hljóðfæraleikurum. Stjórnandi Jón Stefánsson. Fluttar verða 4 mótettur eftir J.S. Bach. Miðaverð kr. 2500/kr 2.000 eldri borgara/ kr 1.600 fyrir félaga í Listafélagi Langholtskirkju. Ókeypis fyrir börn.
Lesa áfram …

Jón Helgi Þórarinsson, 14/4 2008

Biskup vísiterar Langholtssöfnuð 20 apríl kl. 11

Hátíðamessa þar sem biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, predikar.
Biskup talar sérstaklega til barna og ungmenna í byrjun messunnar og gefur þeim litla gjöf.
Prófastur, séra Jón Dalbú Hróbjartsson, þjónar fyrir altari ásamt prestum Langholtskirkju. Gradualekór Langoltskirkju syngur undir stjórn Jóns Stefánssonar.
Veitingar í safnaðarheimilinu á eftir. Sóknarbörn hvött til að fjölmenna.

Jón Helgi Þórarinsson, 8/4 2008

Messa 6. apríl kl. 11. Ferming.

Jón Helgi Þórarinsson, 2/4 2008

Barnastarf 6. apríl kl. 11

Jón Helgi Þórarinsson, 2/4 2008

Kvenfélagsfundur 2. apríl kl. 20. M.a. verður bingó.

Jón Helgi Þórarinsson, 1/4 2008

Messa sunnudaginn 30. mars kl. 11

Ferming. Prestar sr Jón Helgi Þórarinsson og Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Organisti Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju syngur.

Jón Helgi Þórarinsson, 26/3 2008

Langholtskirkja,
kirkja Guðbrands biskups


Sjá myndir úr starfinu.

Sóknarprestur
sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir,
viðtalstímar samkvæmt samkomulagi.
Sími sóknarprests er: 8617918. Vinsamlegast lesið inn skilaboð ef ekki svarar. Einnig hægt að senda póst á gudbjorg (hjá) langholtskirkja.is.

Organisti
Jón Stefánsson
viðtalstímar samkvæmt samkomulagi.
s. 8941600
klang(hjá)kirkjan.is

Vegna útleigu sala og kirkju :
langholtskirkja@langholtskirkja.is

Sími Langholtskirkju 5201300.

Laugardagur

Kl. 13 Al Anon fundur, opinn / AA fundur lokaður

Dagskrá ...