Safnaðarstarf
Hér getur þú lesið um:
- barnastarf á sunnudögum kl. 11
- starf eldri borgara á miðvikudögum
- foreldra- og ungbarnamorgna
- kvenfélagið, prjónakvöld o.fl.
Barnastarf
Barnastarf er alla sunnudagsmorgna kl. 11. Stundin hefst venjulega í kirkjunni og taka börnin þá stutta stund þátt í messunni með hinum fullorðnu. Gjarnan er sunginn barnasöngur áður en börnin fara inn í safnaðarheimilið. Þar tekur við stund við hæfi hinna ungu með söng, lestri og hugleiðingu, bænagjörð, leikjum og föndri. Rut Magnúsdóttir, Steinunn Leifsdóttir og Aron Bjarnason sjá um starfið en einnig liðsinnir Ágústa Jónsdóttir reglulega við starfið.
Starf eldri borgara
Opið hús fyrir eldri borgara er alla miðvikudaga.
Kl. 12.10 er bænagjörð með orgelleik og sálmasöng í kirkjunni. Er hún öllum opin.
Kl. 12.30 er boðið upp á léttan málsverð (kr.500).
Kl. 13 - 16 er tekið í spil, sungið, föndrað og spjallað og kaffisopinn er á sínum stað. Umsjón með starfinu hefur Margrét E Jónsdóttir.
Foreldra og ungbarnamorgnar
Opið hús alla þriðjudaga kl. 10 - 12