Langholtskirkja

 

Glerlistaverk Langholtskirkju

Glerlistaverk Langholtskirkju

Sigríður Ásgeirsdóttir, glerlistamaður, skrifaði eftirfarandi grein í tengslum við blessun glerlistaverks í Langholtskirkju í september 1999:

Í maí árið 1997 kom sóknarnefnd Langholtskirkju á vinnustofu mína og óskaði eftir því við mig að ég hannaði steint gler í kirkjuskip Langholtskirkju, þ.e. kórglugga, hliðarglugga og vesturglugga, þannig að glerið myndaði eina heild í kirkjunni. Óskað var eftir því að fyrsti hlutinn af þremur, kórglugginn, yrði settur upp í byrjun júní 1999. Hinir hlutarnir verða svo smíðaðir eftir því sem efni standa til. Það er ljóst að tvö ár eru ekki langur tími í svo viðamikið verk, en það kom mér til góða að kirkjan hafði verið í hugskoti mínu árum saman þar sem ég notaði gluggana í Langholtskirkju sem skólaverkefni á námsárum mínum í Edinborg og hafði þar með mjög mikilvægt forskot í allri frumvinnu.

Það er mikil ábyrgð fólgin í því að vinna svo stórt verk sem þetta. Birtan, sem er megin uppistaða steinda glersins, er margslungin og hefur áhrif á allt umhverfi sitt. Hingað til hefur birtan í kirkjunni verið svolítið villt, svo mjög að söfnuðurinn hefur átt í erfiðleikum með að sjá prestinn og altarið í morgunsólinni. Mín ósk er sú, að jafnframt því að beisla birtuna, gefi glerið kirkjunni hlýlegra og trúarlegra andrúmsloft. Steint gler þarf í vissum skilningi að vera óbundið tíma, það verður hluti kirkjunnar og þarf því að halda ferskleika sínum um ókomin ár. Þar sem ég er bundin tíma reyni ég að vinna með tilfinningar sem eru manninum eðlislægar og breytast ekki þótt veruleiki mannsins breytist. Eftir spjall og fundi með séra Jóni Helga og sóknarbörnum bað ég séra Jón Helga að leiðbeina mér með val á ritningartextum til að vera kjarninn sem ég gæti lagt út af við gerð verksins. Fyrir valinu urðu tveir ritningatextar, sá fyrri eru orð Jesú í Mattheusarguðspjalli (11. 28-30).:

„Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. Því að ok mitt er ljúft og byrði mín létt.”

Hinn textinn eru orð Páls postula í Filippíbréfinu (4. 4-8).:

„Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um neitt heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Jesú Kristi.”

Það er fyrri textinn, „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar” sem myndar kjarna kórgluggans. Til að túlka textann hef ég valið að nota djúpa liti en þó um leið hlýja, sem geta táknað hvíld, frið og dýpt kærleika Guðs. En einnig er þar að finna ljósari liti sem geta bent á vonina og upprisuna. Og er glugginn þanning gerður, að hann er dýpstur og dekkstur yst og neðst, en rís upp í miðju í ljósum, björtum litum. Það er þessi gluggi sem við getum séð í kirkjunni í dag sem bakhjarl orglelsins.

Næst áfangi steinda glersins er smíði hliðarglugga kirkjuskipsins, en með þeim mun ég tengja kórgluggann og vesturgluggann, þannig að þegar gengið er inn kirkjugófið lesist ritningartexti kórgluggans á vinstri hönd og þegar gengið er út úr kirkjunni lesist ritningartexti vesturgluggans á vinstri hönd.

Til grundvallar vesturglugganum, framan á kirkjunni, eru orð Páls postula í Filippíbréfinu „Verið ávallt glaðir í Drottni”. Þar nota ég bjarta liti og form til að tjá gleði og frið trúarinnar.

Ég þakka það traust sem prestur Langholtskirkju, sóknarnefnd og sóknarbörn hafa sýnt mér með því að fela mér þetta verkefni. Við höfum átt frábært samstarf. Það vekur aðdáun mína að sjá svo mikið óeigingjarnt starf unnið með svo miklum stórhug og glæsileika sem ég hef séð hér í Langholtssókn og ég er viss um að ekki líður langur tími þar til steinda glerið verður allt upp komið og öllum frágangi kirkju og lóðar lokið. Ég hef lagt mig fram um að gera gluggana þannig úr garði að þeir höfði til fólks orðalaust, án útskýringa, á svipaðan hátt og tónlist. Hver sér verkið sínum augum. Verkið þarf að hlúa að þér hvort sem þú kemur til kirkjunnar til að gleðjast eða til að syrgja.

 

Langholtskirkja, Sólheimum 13 - 15, 104 Reykjavík. Sími 520 1300 , fax 520 1301 · Kerfi RSS