Laugalandsprestakall

 

Messa og ferming í Saurbæjarkirkju 29. maí

Almenn messa og ferming verður í Saurbæjarkirkju 29. maí kl. 11. Fermdur verður Aron Freyr Garðarsson, Hleiðargarði. Á almennum bænardegi verður tekin stund til fyrirbæna fyrir bræðrum okkar og systrum á Suðurlandi. Kór Laugalandsprestakalls leiðir sönginn undir stjórn Daníels Þorsteinssonar. Allir velkomnir.

Guðmundur Guðmundsson, 23/5 2011

Páskamessa í Grundarkirkju kl. 11 og Kaupangskirkju kl. 13.30

Á páskadag verða hátíðarmessur í Grundarkirkju kl. 11 og Kaupangskirkju kl. 13.30. Sunginn verður hátíðarsöngur Bjarna Thorsteinssonar. Kór kirknanna leiða sönginn undir stjórn organistann Daníels Þorsteinssonar á Grund og Petru Pálsdóttur í Kaupangskirkju. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðmundur Guðmundsson, 17/4 2011

Íhugunarstund í Munkaþverárkirkju á föstudaginn langa 22. apríl kl. 11

Á föstudaginn langa verður íhugunarstund í Munkaþverárkirkju kl. 11. Kirkjan hefur löngum íhugað píslargöngu frelsarans þennan dag og fylgt Via Dolorosa eða vegi krossins. Að þessu sinni verða skoðuð nokkur listaverk eftir Caravaggio, Massys, Hieronymus, Chagall, Munk og Denis. Meðan verða lesnir íhugunartextar og úr Passíusálmum Hallgíms Péturssonar. Lesarar eru ásamt presti Aníta Jónsdóttir, Leifur Guðmundsson og Valgerður Schiöth. Daníel Þorsteinsson organist leikur tónlist inn á milli lestra.

Guðmundur Guðmundsson, 17/4 2011

Fermingarmessa á Grund skírdag 21. apríl kl. 11

Fermingarmessa verður í Grundarkirkju á skírdag 21. apríl kl. 11. Fermd verða: Arna Ýr Karelsdóttir, Skógartröð 5, Bjarni Heiðar Jósefsson, Möðruvellir 1, Elísabet Lind Hlynsdóttir, Akur, Eydís Rachel Missen, Jórunnarstaðir, Heiða Hansdóttir, Skógartröð 3, Jakob Atli Þorsteinsson, Kristnes 6, Karl Liljendal Hólmgeirsson, Dvergsstaðir, Kolfinna Ólafsdóttir, Laugartröð 7.

Guðmundur Guðmundsson, 17/4 2011

Fermingarmessa í Hólakirkju pálmasunnudag 17. apríl kl. 11

Fermingarmessa verður í Hólakirkju á pálmasunnuda 17. apríl kl. 11. Umfjöllunarefni er innreið Jesú í Jerúsalem sem er inngangur að dymbillvikunni. Kór Laugalandsprestakall syngur hátíðartón Bjarna undir stjórn Daníels Þorsteinsson. Fermdir verða Ágúst Örn Víðisson, Ártröð 1, og Gumundur Viðar Ingvason, Ártúni. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðmundur Guðmundsson, 13/4 2011

Kyrrðardagur á Möðruvöllum í Hörgárdal 16. apríl

Íhugun - kyrrð - útivera. Kyrrðardagur verður á Möðruvöllum í Hörgárdal laugardaginn 16. apríl kl. 10-17. Þátttakendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri svo njóta megi gönguferða í náttúrunni, hvort sem fólk velur að ganga eitt sér eða í hóp. Umsjón: Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur og sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur. Kyrrðardagurinn er þáttakendum að kosnaðarlausu. Hvet ykkur til að skrá ykkur sem fyrst þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Skráning á srslara@ismennt.is eða í síma 462 1963.

Guðmundur Guðmundsson, 13/4 2011

Síðasta samvera í sunnudagaskólanum 10. apríl

Síðasta samvera vetrarins verður sunnudaginn 10. apríl í Hrafnagilsskóla milli kl. 11 og 12. Þá ætlum við að ræða um páskana og ýmislegt fleira. Svo minnum við á vorferðalagið okkar fram á Hólavatn en sú ferð verður farin sunnudaginn 8. maí. Hún verður nánar auglýst þegar nær dregur. Hlökkum til að sjá ykkur.
Starfsfólk sunnudagaskólans

Guðmundur Guðmundsson, 4/4 2011

Messuheimsókn úr Ólafsfirði á sunnudaginn 3. apríl

Næstkomandi sunnudag 3. apríl verður messa í Möðruvallakirkju kl. 13.30. Kór Ólafsfjarðarkirkju kemur í heimsókn og syngur við messuna ásamt Kór Laugalandsprestakalls. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur í Ólafsfirði og sr. Guðmundur Guðmundsson verða með samtalsprédikun um boðunardag Maríu. Sóknarnefndirnar í prestakallinu bjóða í kirkjukaffi eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðmundur Guðmundsson, 30/3 2011

Messuheimsókn í Hallgrímskirkju

Messuheimsókn í Hallgrímskirkju í Reykjavík 20. mars tókst ágætlega. Kór Lauglandsprestakalls undir stjórn Daníels Þorsteinssonar leiddi sálmasöng og söng m.a. trúarjátningarsálm úr Munkaþverárhandritinu og Maríusonur mér er kallt eftir Sigríði Schöuth. Það var ánægjuleg reynsla að syngja í þessum mikla helgidómi við undirleik Björns Steinars Sólbergssonar, organista í Hallgrímskirkju. Sr. Guðmundur Guðmundsson prédikaði og þjónaði fyrir altari með sr. Birgi Ásgeirssyni, presti í Hallgrímskirkju.

Guðmundur Guðmundsson, 30/3 2011

Messa í Kaupangskirkju 13. mars kl. 13.30

Messa verður í Kaupangskirkju næstkomandi sunnudag 13. mars kl. 13.30. Þetta er fyrsti sunnudagur í föstu, verður það íhugunarefni dagsins. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur.

Guðmundur Guðmundsson, 13/3 2011

Guðmundur Guðmundsson
settur sóknarprestur í Laugalandsprestakalli
Viðtalstími mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 11-12
og eftir samkomulagi

Skrifstofa: Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3
Sími: 462 6702
Farsími: 897 3302

Mynd á forsíðu: Úr kór Grundarkirkju

 

Sigurhæðir, Eyrarlandsvegi 3, 600 Akureyri. Sími 462 6702 eða 897 3302 · Kerfi RSS