Snúast til varnar gegn niðurskurði á sóknargjöldum
Leikmannastefna Þjóðkirkjunnar hvetur sóknarnefndir til að snúast til varnar gegn frekari niðurskurði á sóknargjöldum. Einnig hvetur stefnan til endurskoðunar á reglum um kjör til kirkjuþings og til eflingar þátttöku og lýðræðis við kjör.
Um 40 manns sóttu Leikmannstefnu Þjóðkirkjunnar sem haldin var laugardaginn 10. apríl síðastliðinn. Samþykktar voru tvær ályktanir. Önnur varðaði skerðingu á sóknargjöldum og var svohljóðandi:
Leikmannastefna 2010 beinir því til sóknarnefnda að snúast til varnar gegn frekari niðurskurði á sóknargjöldum.
Sóknargjöldin er félagsgjöld sem innheimt eru af hinu opinbera. Þau standa undir fjölþættu safnaðarstarfi sem er í hættu auk þess sem fjárhag kirkna er stefnt í voða vegna niðurskurðarins.
Leikmannastefna telur það óviðunandi að sóknargjöld séu skorin niður verulega umfram þann almenna niðurskurð sem óhjákvæmilegur er talinn vegna fjárlagahalla ríkisins.
Safnaðarstarf er mikið og vaxandi um þessar mundir m.a. til þess að svara aukinni þörf á erfiðum tímum.
Leikmannastefna hvetur því sóknarnefndir til þess að beita sér í vörn fyrir sóknargjöldum gagnvart þingmönnum og stjórnvöldum.
Hin ályktunin varðaði kjör til kirkjuþings.
Leikmannastefna þjóðkirkjunnar 2010 hvetur sóknarnefndarfólk víðs vegar um landið til að sinna af kostgæfni þeirri starfskyldu sinni að neyta atkvæðisréttar í þeim kirkjuþingskosningum, sem fram fara 1.- 15. maí næstkomandi.
Jafnframt hvetur leikmannastefnan kirkjuþing til að taka til gagngerrar endurskoðunar á starfsreglum um kjör til kirkjuþings í því skyni að efla lýðræði innan þjóðkirkjunnar og virkni þeirra, sem vilja láta sig málefni kirkjunnar varða.



