Leikmannastefna 2009
23 . Leikmannstefna þjóðkirkjunnar verður haldinn í Neskirkju, Reykjavík 28. mars 2009 og hefst með setningu biskups Ísland Herra Karls Sigurbjörnssonar. Yfirskrift stefnunar er “Heildarskipan þjónustu kirkjunnar”. Sr.
Á leikmannastefnu eiga sæti með málfrelsi, tillögurétti og atkvæðisrétti, tveir fulltrúar leikmanna fyrir hvert prófastsdæmi, sem kjörnir eru á héraðsfundum til fjögurra ára í senn. Þó skulu prófastsdæmi með fleiri en 15 þús. íbúa eiga þrjá fulltrúa á leikmannastefnu og prófastsdæmi með fleiri en 30 þús. íbúa eiga fjóra fulltrúa. Kjósa skal varamann fyrir hvern fulltrúa. Auk þess sitja á leikmannastefnu með málfrelsi og tillögurétti: Biskup Íslands, forseti kirkjuþings, leikmenn á kirkjuþingi, leikmenn í kirkjuráði og fulltrúar frá hverjum þeim samtökum og félögum sem starfa á landsvísu innan kirkjunnar.



