Sunnudaginn 28. febrúar verður messa kl. 15.00 hjá íslenska söfnuðinum. Fermingarbörn aðstoða við messuna. Kór Íslendinga syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Helgi Jóhannsson syngur einsöng. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Messan verður haldin í Sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).
Fyrir messu verður fermingarfræðsla í sendiráðinu. Hún hefst kl. 12.00.
steinunn.arnthrudur.bjornsdottir, 24/2 2010
Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir mun þjóna íslenska söfnuðinum í London á vormisseri. Fjórar messur eru áætlaðar, þann 24. janúar, 28. febrúar, 25. apríl og 16. maí. Allar verða messurnar klukkan þrjú í Sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).
Fermingarfræðsla verður sömu daga klukkan 12:00 í sendiráði Íslands í Lundúnum (2 A Hans Street, SW1X 0JE, næstu jarðlestarstöðvar eru Knightsbridge og Sloane Square) og lýkur eftir guðsþjónustunni í Sænsku kirkjunni um klukkan 16:00.
steinunn.arnthrudur.bjornsdottir, 18/12 2009
Sunnudaginn 20. september næstkomandi. klukkan 15:00 verður íslensk guðsþjónusta í Sænsku kirkjunni
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 11/9 2009
Íslenski kvennakórinn GRADUALE NOBILI syngur í Lundúnum í byrjun júli, á leiðinni til Wales, þar sem kórinn mun keppa á alþjóðlegri tónlistarhátið í Llangollen - the Llangollen International Music Eisteddfod.
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 23/6 2009
Íslensk hátíðarmessa verður sunnudaginn 14. júní n.k. í Dönsku kirkjunni í Regent Park og hefst klukkan 15:00
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 12/6 2009
Sunnudaginn 3. maí n.k. verður guðsþjónusta í Sænsku kirkjunni klukkan 15:00
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 28/4 2009
Hátíðarmessa á Páskadag verður 12. apríl n.k. klukkan 15:00 í Sænsku kirkjunni.
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 1/4 2009
Fyrirhugað er halda hjónanámskeið í Lundúnum, laugardaginn 16. maí n.k. í Íslenska sendiráðinu 2A Hans Street, SW1X 0JE (næstu jarðlestarstöðvar eru Knightsbridge og Sloane Square) frá klukkan 11:00 til klukkan 16:00.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 17/3 2009
Guðsþjónusta verður 8. mars n.k. klukkan 15:00 í Sænsku kirkjunni.
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 4/3 2009
Íslenski söfnuðurinn í London er nú kominn á “Facebook”
Lesa áfram …
Sigurður Arnarson, 23/2 2009