Íslenski söfnuðurinn í London

 

Næsta guðsþjónusta

Guðsþjónusta verður 8. mars n.k. klukkan 15:00 í Sænsku kirkjunni.

Íslensk guðsþjónusta verður sunnudaginn 8. mars næstkomandi klukkan 15:00 í Sænsku kirkjunni á 6 Harcourt Street, W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Maryleebone og Edgeware Road).

Íslenski kórinn í London syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur og einleik annast Eyjólfur Eyjólfsson.

Að venju er sunnudagskóli á sama tíma í umsjón Friðfinns, Magneu, Árna, Júlíu, Braga og Söru.

Þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að koma með meðlæti á kaffihlaðborð eftir guðsþjónustuna og auðvitað eru allir hjartanlega velkomnir.

Fermingarfræðsla verður sama dag í sendiráðinu og hefst hún klukkan 11:00

Sigurður Arnarson, 4/3 2009 kl. 11.58

     

    Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS