Íslenski söfnuðurinn í London

 

Hjónanámskeið í London

Fyrirhugað er halda hjónanámskeið í Lundúnum, laugardaginn 16. maí n.k. í Íslenska sendiráðinu 2A Hans Street, SW1X 0JE (næstu jarðlestarstöðvar eru Knightsbridge og Sloane Square) frá klukkan 11:00 til klukkan 16:00.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Námskeiðið er samvinnuverkefni Íslenska safnaðarins í Lundúnum og Fræðslustarfs Þjóðkirkjunnar.

Hjón á öllum aldri eru velkomin en skráning fer fram hjá á netfanginu chaplain@mfa.is fyrir 1. maí n.k.

Þátttökugjald er 5 GBP á manninn (innifalið í því er léttur hádegisverður).

Leiðbeinandi er sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, á Biskupsstofu í Reykjavík.

Hjónanámskeiðið hefur fyrst og fremst að markmiði að styrkja og glæða hjónabandið með því að draga fram það sem jákvætt er og reyna að byggja þar ofan á en jafnframt er bent á ýmsilegt sem hindrar að við þroskumst í hjónabandi okkar. Hjónin vinna saman ein og þegar rætt er saman í hópnum er engum stillt upp við vegg, en saman getum við miðlað af reynslu okkar.

Það verða engir langir fyrirlestrar, heldur verkefni sem allir geta unnið með. Verkefnin miða að því að:

1. Skoða hjónaband okkar af einlægni og hreinskilni eins og það er núna.

2. Ákveða í sameiningu hvaða nýja stefnu við viljum að hjónaband okkar taki og þrósist í á næstu mánuðum.

3. Reyna að öðlast nýjan skilning, þekkingu og færni, sem hjálpar okkur til þess að ná þeim markmiðum.

Sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sem er leiðbeinandi á námskeiðinu, hefur meistaragráðu í sálgæslufræðum, auk menntunar í fjölskylduráðgjöf. Hann stýrði Fjölskylduþjónustu kirkjunnar (viðtöl við hjón og fjölskyldur, ráðgjöf og handleiðsla presta) í áratug og hefur haldið mörg hjónanámskeið í Skálholti og víðar m.a. í Kaupmannahöfn í október 2007.

Sigurður Arnarson, 17/3 2009 kl. 20.40

     

    Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS