Hátíðarmessa á Páskadag
Hátíðarmessa á Páskadag verður 12. apríl n.k. klukkan 15:00 í Sænsku kirkjunni.
Hátíðarmessa á Páskadag verður 12. apríl n.k. klukkan 15:00 í Sænsku kirkjunni á 6 Harcourt Street, London, W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone). Þóra Hallgrímsdóttir syngur einsöng og Andrew Cauthery leikur á einleik. Sunnudagaskólinn að venju á sama tíma. Félagar úr Íslenska kórnum í London leiða messusöng og þau sem geta sungið með eru beðin að koma til söngæfingar á kórlofti klukkutíma fyrir athöfn. Hátíðarkirkjukaffi á eftir og þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að koma með meðlæti á kaffihlaðborð.
Sigurður Arnarson, 1/4 2009 kl. 10.03