Næsta guðsþjónusta og tónleikar
Sunnudaginn 3. maí n.k. verður guðsþjónusta í Sænsku kirkjunni klukkan 15:00
Næsta guðsþjónsta Íslenska safnaðarins í Lundúnum verður sunnudaginn 3. maí n.k., kl. 15:00 í Sænsku kirkjunni á 6 Harcourt Street (næstu jarðlestarstöðvar eru Marylebone og Edgeware Road).
Íslenski kórinn í London syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur og sunnudagaskólinn verður á sínum stað. Eftir guðsþjónustuna mun Robin Walker, organisti kveðja með orgeltónum en Robin er að flytjast til Flórens. Hans verður sárt saknað fyrir sín góðu störf fyrir söfnuðinn.
Kaffi verður að venju í safnaðarheimili kirkjunar á eftir og þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að koma með veitingar á kaffihlaðborð. Að því loknu verður aðalfundur safnaðarins.
Sigurður Arnarson, 28/4 2009 kl. 19.39