Íslenski söfnuðurinn í London

 

GRADUALE NOBILI

Íslenski kvennakórinn GRADUALE NOBILI syngur í Lundúnum í byrjun júli, á leiðinni til Wales, þar sem kórinn mun keppa á alþjóðlegri tónlistarhátið í Llangollen - the Llangollen International Music Eisteddfod.

Þær syngja í kvöldbænum Sænsku kirkjunni þriðjudaginn 7. júlí kl. 19:00 (6 Harcourt Street, London W1H 4AG, næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone Station).

Hugvekju þar flytur Sigríður Ella Magnúsdóttir, söngkona.Miðvkudaginn 8. júlí syngja þær í messu (Evensong) í Southwark Cathedral (London Bridge, London, SE1 9DA, næsta jarðlestarstöð er London Bridge) 8. júlí kl. 16.30.

Graduale Nobili er úrvalskór stúlkna, sem starfræktur er í Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar. Kórinn var stofnaður 2001. Hann er skipaður stúlkum sem hafa sungið með Gradualekórnum, æskukór Langholtskirkju. Flestar eru í söngnámi eða öðru tónlistarnámi.

Sigurður Arnarson, 23/6 2009 kl. 16.01

     

    Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS