Kirkjustarfið í haust
Sunnudaginn 20. september næstkomandi. klukkan 15:00 verður íslensk guðsþjónusta í Sænsku kirkjunni
Sunnudaginn 20. september næstkomandi. klukkan 15:00 verður íslensk guðsþjónusta í Sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).
Íslenski kórinn í Lundúnum syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur.
Sunnudagaskólinn hefur vetrarstarfið á sama tíma og stað.
Kirkjukaffi á eftir að venju og þau sem hafa tækifæri til eru beðin um að taka með sér veitingar á kaffihlaðborðið og aðalfundur Íslendingafélagsins verður svo haldinn eftir guðsþjónustuna.
Aðrar messu og guðsþjónustur í haust verða 11. október, 1. nóvember og 6 desember í Sænsku kirkjunni.
Fermingarfræðslan hefst einnig 20. september n.k. klukkan 12:00 í Íslenska sendiráðinu í Lundúnum (2 A Hans Street, SW1X 0JE, næstu jarðlestarstöðvar eru Knightsbridge og Sloane Square) og lýkur eftir guðsþjónustunni í Sænsku kirkjunni um klukkan 16:00. Þegar eru nokkrir unglingar skráðir í fræðsluna en þau sem huga á fermingu á næsta ári hvort sem það er á Íslandi eða í Bretlandi eru beðin um að skrá sig við fyrsta tækifæri á chaplain@mfa.is
Sigurður Arnarson, 11/9 2009 kl. 10.10