Íslenski söfnuðurinn í London

 

Messur og ferming

Helgina 15. - 16. maí verða messur í Grimsby og London.

Þann 15. maí næstkomandi kl. 14 verður messa í St James kirkju, St James Square, DI31 1EP  Grimsby. Svo gleðilega vill til að einnig verður ung stúlka, Victoria Cleland, fermd við þá athöfn. Góður hópur söngvara úr Íslenska kórnum taka þátt í messunni undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur.
Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.
Freyjurnar“ bjóða í kaffi að vanda á St. James Hotel eftir athöfnina.

Þann 16. maí kl 15 er messa hjá íslenska söfnuðinum í London. Hún verður að venju í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).  Kór Íslendinga syngur undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Sunnudagaskóli verður í umsjá vaskra félaga. Kaffi í boði safnaðarins eftir messu. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 10/5 2010 kl. 10.57

     

    Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS