Íslenski söfnuðurinn í London

 

Helgistund og þjóðhátíðargleði

Sunnudaginn 20. júní næstkomandi verður helgistund í dönsku kirkjunni við Regent’s Park. Stundin er ætluð fyrir alla fjölskylduna og verða barnasöngvar sungnir auk ættjarðarsálma. Ávarp flytur sendiherra Íslands í Bretlandi, Benedikt Jónsson. Fjallkona verður Hera Hilmarsdóttir og flytur hún ljóð í lok helgistundarinnar.

Kór Íslendinga í London syngur og leiðir söng undir stjórn Þóru Hallgrímsdóttur. Friðþjófur Þorsteinsson stýrir söng með yngsta fólkinu. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir.

 Heimilisfang kirkjunnar er 5 Saint Katharine’s Precinct, London NW1 4HH, næsta lestarstöð Mornington Present.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 16/6 2010 kl. 15.51

     

    Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS