Messur á haustmisseri
Messur næsta hausts hjá íslenska söfnuðinum í London verða sunnudagana 19. september, 24. október og 5. desember og hefjast alltaf kl. 15.00. Þær verða venju í sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone). Sunnudagaskóli verður að venju, kirkjukaffi og söngur. 5. desember verður einnig jólaskemmtun. Nánar verður sagt frá hverri messu síðar.
Laugardaginn 4. desember verður messa í Hull í samvinnu við Íslendingafélagið þar.
Fermingarfræðsla hefst 19. september kl. 12. Hún verður í sendiráði Íslands og er gert ráð fyrir að fermingarbörn mæti tvo sunnudaga í fræðslu á haustönn, 19. september og 5. desember. Fermingarbörn munu einnig vinna verkefni rafrænt. Prestur er sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Þau sem hafa áhuga á að nýta þessa fræðslu geta haft samband við prest safnaðarins.
Þau sem vilja ræða við prest safnaðarins geta haft samband í gegnum tölvupóst eða síma. Presturinn verður næst í London til viðtals 17. og 18. september. Gott er að bóka tíma fyrirfram sé þess kostur.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 24/8 2010 kl. 10.35