Íslenski söfnuðurinn í London

 

Messa sunnudaginn 13. febrúar í London

Næsta messa í London verður sunnudaginn 13. febrúar kl. 15.00 í Sænsku kirkjunni, 6 Harcourt Str. Kór Íslendinga í London syngur undir stjórn Matthildar Gísladóttur sem tók nýlega við kórnum. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir messar og fermingarbörn aðstoða við helgihaldið. Sunnudagaskóli verður á sama tíma. Eftir messu er kirkjukaffi í safnaðarheimilinu.

Fermingarfræðsla verður sama dag í sendiráðinu og hefst hún kl. 12.00.

Sænska kirkjan er staðsett við nr 6 Harcourt Street, London W1H 4AG (næstu jarðlestarstöðvar eru Edgeware Road og Maryleebone).

Aðrar messur á vormisseri verða þann 3. apríl, 15. maí og 19. júní. Messað verður í Grimsby þann 14. maí og Þá verður ungur maður fermdur.

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 11/2 2011 kl. 14.13

     

    Íslenski söfnuðurinn í London,b/t sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur, Embassy of Iceland London, 2A Hans Street, London SW1X 0JE. Sími tel. 44 (0) 20 7259 3999. · Kerfi RSS